YANN TIERSEN Á LISTAHÁTÍÐ 2012 - MIÐASALA HAFIN!
Franski brautryðjandinn YANN TIERSEN ásamt hljómsveit á Listahátíð
KAUPA MIÐA HÉR
Tónleikar í Hörpu, Norðurljósum
fimmtudaginn 31. maí 2012 kl. 21
Miðaverð: 3.900 kr.
Miðasala er hafin á www.listahatid.is og www.harpa.is
Franski tónlistarmaðurinn Yann Tiersen er einn frumlegasti brautryðjandi sinnar tónlistarkynslóðar og dáður fyrir marglaga og djúpa músík sína sem hann setur fram í heillandi og melódískum tónsmíðum. Ákveðinn hljómur er einkennandi í tónlist hans sem þekkja má á fjölda ólíkra hljóðfæra sem hann notar gjarnan saman: gítar, synthesizer eða fiðlu með hljóðfærum á borð við melódikku, xylofón, leikfangapíanó, harpsicord, harmonikku og jafnvel ritvél.
Yann Tiersen hefur undanfarna mánuði fylgt nýjustu plötu sinni Skyline eftir á tónleikaferðalagi um Evrópu og Bandaríkin en þaðan kemur hann beint til Íslands. Yann Tiersen og félagar, þeir Stéphane Bouvier, Robin Allender, Lionel Laquerriere, Neil Turpin og Færeyingurinn Olavur Jakupsson, hafa sett saman sérstakt órafmagnað tónleikaprógramm úr Skyline fyrir Íslendinga.
Það er Listahátíð einstök ánægja að bjóða Yann Tiersen og hljómsveit velkomna á hátíðina í vor.

