Dagskrá 2006 kynnt á blaðamannafundi
28/2/2006
Listahátíð í Reykjavík 2006 verður haldin dagana 12. maí til 2. júní var kynnt á blaðamannafundi 28. febrúar. Er það 20. hátíðin frá stofnun Listahátíðar árið 1970. Um 50 viðburðir, með þátttöku hátt í sex hundruð listamanna, þar af á fjórða hundrað íslenskra og á annað hundrað erlendra, verða á dagskrá hátíðarinnar í ár. Tónlistin verður fyrirferðarmikil á þessari hátíð og segja má að hátíðin beini sérstaklega sjónum að þeim íslensku menningarstofnunum sem frá upphafi hafa verið kjölfestan í Listahátíð. Má þar nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, Íslensku óperuna, Þjóðleikhúsið, Borgarleikhúsið og Íslenska dansflokkinn, en allar þessar stofnanir eru með glæsileg verkefni á hátíðinni auk þess sem Kammersveit Reykjavíkur og Caput hópurinn verða með stóra tónleika. Þrjár óperur Meðal hápunkta á hátíðinni í vor verður frumflutningur þriggja ópera hér á landi; franska óperan Le Pays (Föðurlandið) eftir tónskáldið Joseph-Guy Ropartz verður flutt í nýstárlegu rými í porti Hafnarhússins með Sinfóníuhljómsveit Íslands og nokkrum okkar vinsælustu söngvurum og í Þjóðleikhúsinu verður Galdraskyttan eftir Carl Maria von Weber frumflutt af ungu fólki í Sumaróperunni. Þriðja óperan verður bráðskemmtileg barokkópera í flutningi hins magnaða I Fagiolini hóps sem er þekktasta söngsveit Englendinga í dag, en sú sýning er í samstarfi við Íslensku óperuna. Menningarstofnanir gegna mikilvægu hlutverki Eins og undanfarin tvö ár, eða síðan hátíðin varð að árlegum viðburði, verður athyglinni þannig beint að einni listgrein, þótt öðrum greinum verði einnig gert hátt undir höfði. Auk tónlistar skipar dans veglegan sess með fimm mismunandi sýningum og einnig munu ýmsar menningarstofnanir tengdar fræðslu og rannsóknum gegna mikilvægu hlutverki á hátíðinni. Þar má nefna Landsbókasafnið, Þjóðminjasafnið, Borgarbókasafnið, Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Háskóla Íslands, Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur sem allar verða með afar nýstárleg verkefni á dagskrá Listahátíðar í vor. Sérstök ástæða er til að vekja athygli á áhugaverðum ráðstefnum og námskeiðum á þessari hátíð, með fyrsta flokks erlendum fyrirlesurum. Má þar nefna Pinterþing i Þjóðleikhúsinu, þar sem einn fremsti Pinterfræðingur heims, Michael Billington flytur erindi, kynningu á norrænum verðlaunaleikritum í Borgarleikhúsinu, ráðstefnu á vegum Tónverkamiðstöðvarinnar þar sem tónskáldið Paul Hoffart fjallar um tónlist á vefnum og masterclass breska tónlistarhópsins I fagiolini í Íslensku óperunni. Listahátíð kynnir nú sem fyrr listamenn frá fjarlægum heimshlutum sem sjaldan eiga fulltrúa á íslensku menningarsviði; frá Búlgaríu, Brasilíu og Suður-Afríku koma stórir hópar, auk þess sem m.a. pólskir, ítalskir, franskir, þýskir, enskir og norrænir listamenn verða með fjölmenn verkefni, oftast í samvinnu við íslenska listamenn. La Strada, Haydn og Mr. Skallagrímsson Listahátíð teygir sig einnig út fyrir borgarmörkin líkt og undanfarin ár; Kammersveit Hafnarfjarðar og ítalskir listamenn spila tónlist eftir Nino Rota úr kvikmynd Fellinis, La Strada og kvikmyndin verður einnig sýnd. Á Austfjörðum verður mikill tónlistardagur þegar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flytur Sköpunina eftir Haydn ásamt með austfirskum kórum. Þá verður opnað glæsilegt Landnámssetur í Borgarnesi og frumsýnd leiksýning um Egil sjálfan Skallagrímsson af því tilefni. Í miðbæ Reykjavíkur verður hins vegar Landsnámsskálinn í Aðalstræti vígður og er opnun hans liður í opnunardagsskrá Listahátíðar 12. maí. Margslungnir tónlistarviðburðir Af tónlistarviðburðum ber að nefna búlgarska kvennakórinn Angelite, sem nýtur mestrar hylli kvennakóra í heiminum í dag og er margverðlaunaður fyrir einstakan söng, Mozarttónleika Kammersveitar Reykjavíkur með nokkrum fremstu einleikurum landsins í Langholtskirkju og frumflutning Caput hópsins á “Tárum Diónýsusar” eftir Lars Graugard með einni fremstu leikkonu Norðurlandanna, Stinu Ekblad. Þá má ekki gleyma hinu afar óvenjulega harmónikkubandi, Motion Trio frá Kraká í Póllandi sem heldur tvenna tónleika í Nasa. Mugison kemur fram með nýtt efni ásamt hljómsveit og sænski píanistinn Anders Widmark og tríó hans leika djassútgáfu af tónlist Bizets úr Carmen í Nasa. Þá verða þrennir Schumann tónleikar á sunnudagsmorgnum í Ými þar sem ekki færri en 6 íslenskir píanóleikarar skipta með sér verkum og þrennir miðnæturtónleikar verða í Iðnó á laugardagskvöldum með framúrskarandi tónlistarmönnum sem flytja jass og léttari tónlist, svo fátt eitt sé talið. Þar í hópi eru m.a. Sigurður Flosason, Sólrún Bragadóttir, Benni Hemm Hemm, Björn Thoroddsen og fleiri. Suður-Ameríka og -Afríka Einn allra stærsti viðburður hátíðarinnar eru stórtónleikar með afrísku söngkonunni Miriam Makeba, einum áhrifamesta listamanni síðustu aldar, í Laugardalshöll 20. maí. Makeba hefur aldrei komið fyrr til Íslands, þó hún hafi en notið fádæma vinsælda á hinum Norðurlöndunum og ekki hafi selst jafn hratt upp á tónleika nokkurs annars tónlistarmanns þar. Í Borgarleikhúsinu birtist hinn seiðandi brasilíski danshópur Grupo Corpo sem er langvinsælasti danshópur Suður-Ameríku í dag. Þessi hópur dansar óvenjulegt sambland af nútímadansi með brasilísku ívafi við tónlist frá Kúbu og Ríó. Myndlist og Fjölljóðahátíð Myndlistarverkefnið Site-Ations með þátttöku sex Evrópulanda teygir sig út í Viðey, einnig með þátttöku 6 grunnskóla og ljósmyndaverkefnið Flugan verður í Borgarbóksafni og Þjóðminjasafni. Fleiri verkefni höfða til allrar fjölskyldunnar eins og sýning Bernd Ogrodnik, Umbreyting –ljóð á hreyfingu, sem sýnd verður í nýju rými Þjóðleikhússins, Kassanum, að ógleymdum hinum franska Culbuto, sem mun veltast um götur borgarinnar opnunarhelgina. Fjölljóðahátíð Smekkleysu verður í Hafnarhúsinu og þar koma fleiri tugir listamanna fram úr ýmsum greinum, myndlist, ritlist og tónlist. Þar fer einnig fram alþjóðlegt samstarfsverkefni um rými og umhverfi á vegum Háskóla Íslands. Ýmis fleiri verkefni verða á dagskránni, spennandi myndlistarverkefni í Safni og Gallerí i8 og í Nýlistasafninu og Gallerí 100° vinna saman ungir listamenn frá 14 löndum. Íslenski dansflokkurinn stendur fyrir fjögurra landa dansveislu í Borgar-leikhúsinu, þar á meðal fer nú sýningin Marlene upp á stóra sviðið í fyrsta sinn. Útvarpsþáttur og farsælt samstarf Þá má ekki gleyma bandaríska útvarpsþættinum – Prairie Home Companion sem sendur verður út frá Þjóðleikhúsinu, en þessi þáttur er einhver allra vinsælasti útvarpsþáttur sögunnar og verður nú í fyrsta sinn sendur út utan Bandaríkjanna. Í tilefni af 20. hátíðinni efndi Listahátíð til skemmtilegs leiks á vefnum þar sem spurt var um ýmsilegt sem tengist Listahátíð og listamönnum hennar. Dregið var úr réttum svörum 14. maí sjá meira. Samstarf Listahátíðar við atvinnufyrirtæki stendur með miklum blóma og verður endurnýjaður samstarfssamningur til 3ja ára við Kb banka á blaðamannafundinum. Dagskrá Listahátíðar 2006
Senda grein