Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

SAFNASAFNIÐ HLÝTUR EYRARRÓSINA 2012

18/2/2012

  • Aðstandendur Safnasafnsins tóku á móti verðlaununum úr hendi Dorritar Moussaieff forsetafrúar, verndara Eyrarrósarinnar
  • Aðstandendur Eyrarrósarinnar og tilnefndra verkefna ásamt forsetafrú og mennta- og menningarmálaráðherra
  • Handhafar Eyrarrósarinnar 2012 ásamt Dorrit Moussaieff
  • Aðstandendur allra tilnefndra verkefna ásamt Dorrit Moussaieff forsetafrú

Eyrarrósina 2012, viðurkenningu fyrir afburða menningarverkefni á landsbyggðinni, hlýtur Safnasafnið á Svalbarðsströnd og veittu aðstandendur þess viðurkenningunni móttöku í dag laugardag við athöfn á Bessastöðum.

Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar afhenti verðlaunin.  Fjölmennt var við athöfnina en auk afhendingarinnar kynnti Hrefna Haraldsdóttir stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík Eyrarrósina og Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ávarpaði samkomuna. Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson sungu einnig nokkur lög við góðar undirtektir gesta.

Verðlaunin sem Safnasafnið hlýtur ásamt Eyrarrós í hnappagatið er fjárstyrkur að upphæð 1,5 milljón, verðlaunagripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur auk flugmiða frá Flugfélagi Íslands. Önnur tilnefnd verkefni í ár voru Sjóræningjahúsið á Vatneyri við Patreksfjörð og tónlistarhátíðin Við Djúpið á Ísafirði og þau hljóta 250 þúsund króna verðlaun auk flugmiða.

Handhafi Eyrarrósarinnar, Safnasafnið – Alþýðulistasafn Íslands, stendur við þjóðveg eitt rétt utan við Akureyri, í gamla Þinghúsinu á Svalbarðsströnd. Safnið opnaði árið 1995 og vinnur merkilegt frumkvöðlastarf í þágu íslenskrar alþýðulistar. Safnið hefur fyrir löngu sannað mikilvægi sitt og sérstöðu í safnaflóru landsins og sýningar þess byggja á nýstárlegri hugsun þar sem alþýðulist og nútímalist mynda fagurfræðilegt samspil. Í sölum Safnasafnsins sýna hlið við hlið frumlegir og ögrandi nútímalistamenn, sjálflærðir alþýðulistamenn, einfarar og börn. Samspil heimilis, garðs, safns og sýningarsala er einstakt og sífellt er bryddað upp á nýjungum. Safnasafnið vinnur ötullega með íbúum sveitarfélagsins og hefur frá upphafi haft frumkvæði að samstarfi við leikskóla- og grunnskólabörn.   

Við athöfnina í dag tilkynnti Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík að samningur aðstandenda Eyrarrósarinnar; Listahátíðar, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands, yrði endurnýjaður til næstu þriggja ára, enda mikil ánægja aðstandenda með verkefnið frá upphafi.

Metfjöldi umsókna var um Eyrarrósina í ár, en árlega er auglýst eftir umsóknum í fjölmiðlum og eru umsækjendur m.a. ýmis tímabundin verkefni, menningarhátíðir, stofnanir og söfn. Fjögurra manna verkefnisstjórn, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðastofnunar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefnir og velur verðlaunahafa.

Verðlaunin hafa allt frá stofnun árið 2005 átt þátt í því að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni og skapað sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Verðlaunin eru gríðarlega mikilvæg enda um veglega upphæð að ræða, en tilnefning til Eyrarrósar er einnig mikilsverður gæðastimpill fyrir þau afburða menningarverkefni sem hann hljóta. 

 

   

Sækja fréttatilkynningu hér sem pdf. skjal

Ljósmyndir í prentupplausn fyrir fjölmiðla:

Magnhildur Sigurðardóttir og Níels Hafstein taka við verðlaununum úr hendi Dorritar Moussaieff á Bessastöðum

Aðstandendur Eyrarrósarinnar 2012 ásamt öllum tilnefndum

Aðstandendur tilnefndra verkefna til Eyrarrósarinnar 2012 ásamt Dorrit Moussaieff forsetafrú

Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson tóku lagið fyrir gesti á afhendingu Eyrarrósarinnar á Bessastöðum

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica