Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Samstarf í 25 ár

26/2/2006

Í tilefni þess að formlegt samstarf Icelandair og Listahátíðar hófst fyrir 25 árum hafa Icelandair ákveðið að gefa 2 flugmiða til hins nýja áfangastaðar Manchester á Bretlandi í spurningaleik Listahátíðar. Þeir sem taka þátt í honum eiga ekki aðeins möguleika á miðum á viðburði Listahátíðar, heldur líka að komast til Manchester, sem er ein af allra skemmtilegustu borgum Bretlands. Listahátíð hóf samstarf við Loftleiðir á sínum tíma þegar hátíðin var sett á laggirnar 1970 en síðan var samstarfið formlegra þegar Flugfélagið og Loftleiðir voru sameinuð og úr varð Flugleiðir, síðan Icelandair. Samstarfið hefur verið einstaklega gott og listamenn Listahátíðar láta þess iðulega getið hversu vel þeim líkar að fljúga með félaginu og margir hafa orðið dyggir viðskiptavinir þess í kjölfarið. Í ár, þegar við höldum upp á 25 ára samstarf, koma stórir hópar langt að. Meðal þeirra gesta sem munu fljúga með Icelandair til landsins í vor er dansflokkurinn Crupo Corpo frá Brasilíu, sem kemur hingað í gegnum París, alla leið frá S-Afríku kemur Miriam Makeba með sinn stóra flokk, en þau koma í gegnum Frankfurt og þaðan kemur líka búlgarski kvennakórinn Angelite. Þá eigum við von á stórum hópum frá Bretlandi, m.a. söngflokknum “I fagiolini”, frá Stokkhólmi kemur Anders Widmark með tríóið sitt og frá Póllandi í gegnum London kemur pólska harmonikutríóið Motion Trio, svo eitthvað sé nefnt. Til gamans má sjá auglýsingu sem gerð var fyrir 25 árum af Icelandair fyrir dagskrá Listahátíðar, en líklega er þessi auglýsing einhver sú alfyrsta sem fyrirtæki hér lætur gera í tilefni af samstarfi við menningarstofnun hér á landi. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan og nú tilheyrir samstarf af þessu tagi rekstri flestra stórra fyrirtækja á Íslandi og Icelandair styðja við bakið á fjöldamörgum listviðburðum.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica