BUIKA OG YANN TIERSEN Á LEIÐ Á LISTAHÁTÍÐ Í VOR
Dagskrá Listahátíðar í Reykjavík í vor er óðum að taka á sig mynd og nú hefur verið staðfest að franski tónlistarmaðurinn
Yann Tiersen er á leið til landsins með hljómsveit og spilar í Hörpu 31. maí. Einnig verður spænsk-afríska söngkonan Buika með tónleika ásamt hljómsveit í Hörpu 3. júní næstkomandi.

Margir íslenskir tónlistarunnendur halda mikið upp á Yann Tiersen, en hann sló í gegn á alþjóðlegum vettvangi með tónlist sinni við frönsku kvikmyndina Amelíe (2000) í leikstjórn Jean-Pierre Jeunet. Hann hefur gert margar plötur síðan sem hlotið hafa frábærar viðtökur, sem og kvikmyndatónlistina við Good Bye Lenin! Í leikstjórn Wolfgang Becker. Yann Tiersen er talinn einn helsti brautryðjandi og frumlegasti tónlistarmaður sinnar kynslóðar.
Yann Tiersen
www.yanntiersen.com
Buika er stórt nafn í heimstónlist og þykir hafa algerlega einstaka rödd sem fólk heillast af strax við fyrstu hlustun. Seiðandi og hrjúfri rödd hennar hefur verið líkt við Ninu Simone, Sara Vaughan og Tinu Turner. Tónlist Buiku er kraftmikil blanda af jazzi, sálartónlist, flamenco og blús. Buika hefur oft verið tilnefnd til verðlauna fyrir tónlist sína, nú síðast til tvennra verðlauna á Latin Grammy Awards 2010 fyrir bestu upptöku ársins á laginu Se Me Hizo Facil og fyrir bestu Best Traditional Tropical Album fyrir geislaplötuna El Ultimo Trago.

