Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

RÚV SÝNIR ÞÁTTARÖÐ UM SAMVINNU TÓNSKÁLDA OG DANSHÖFUNDA Á LISTAHÁTÍÐ

26/1/2012

  • Sigríður Soffía og Þórarinn Guðnason á Listahátíð 2011. Mynd: Morgunblaðið

TÓNSPOR er heitið á nýrri þáttaröð í umsjón Jónasar Sen, sem hefur göngu sína í Sjónvarpinu í kvöld. Þættirnir eru sex og er hver þáttur helgaður einu pari af tónskáldi og danshöfundi, sem unnu tón- og dansverk sem frumflutt voru á Listahátíð í Reykjavík í fyrra. Í þáttunum er fylgst með því hvernig verkin urðu til, frá fyrstu hugmynd til frumsýningar. Auk þess fléttast inn í þættina stutt mynd- og viðtalsbrot þar sem varpað er ljósi á dans og dansmenningu í öllum sínum fjölbreytileika. Danshöfundarnir eru Erna Ómarsdóttir, Steinunn Ketilsdóttir, Lára Stefánsdóttir, Sigríður Soffía Níelsdóttir, Margrét Bjarnadóttir og Helena Jónsdóttir. Tónskáldin eru Ólöf Arnalds, Áskell Másson, Hilmar Örn Hilmarsson, Daníel Bjarnason, Hildigunnur Rúnarsdóttir og Þórarinn Guðnason
Dagskrárgerð er í höndum Jóns Egils Bergþórssonar.
Þættirnir eru samstarfsverkefni RÚV og Listahátíðar í Reykjavík.



1. Sigríður Soffía Níelsdóttir og Þórarinn Guðnason.

spila  fimmtudagur 26. jan. 2012 - Smelltu hér til að horfa á þáttinn

Í fyrsta þætti koma fram Sigríður Soffía Níelsdóttir danshöfundur og Þórarinn Guðnason tónskáld. Sigríður Soffía hefur vakið mikla athygli fyrir dansmynd sína Uniform Sierra, sem sýnir seiðandi neðansjávardans. Þórarinn er í hljómsveitinni Agent Fresco. Í þættinum er fjallað um muninn á ballett og nútímadansi, áhrifamátt danssýninga í sjónvarpi og í tónlistarmyndböndum, á Lækjartorgi og í dansmyndum. Vindur kemur við sögu í verkinu sem sýnt verður í lok þáttarins.


2. Hildigunnur Rúnarsdóttir og Steinunn Ketilsdóttir.

spila fimmtudagur 2. feb. 2012 - Smelltu hér til að horfa á þáttinn

í öðrum þætti koma fram Hildigunnur Rúnarsdóttir tónskáld og Steinunn Ketilsdóttir danshöfundur. Hildigunnur er þekktust fyrir söngverk sín og Steinunn fékk á sínum tíma Grímuverðlaunin fyrir list sína. Í þættinum er fjallað vítt og breitt um nútímadans, tengsl hans við leikhúsið, einnig dansverkstæðið á Skúlagötunni, Reykjavik Dance Festival, kvenleika og margt fleira. Verkið í lok þáttarins er athyglisvert samspil nektar og fallegra laglína.


3. Helena Jónsdóttir og Hilmar Örn Hilmarsson.

spila fimmtudagur 9. feb. 2012 kl. 20.40 - Smelltu hér til að horfa á þáttinn

Í þriðja þætti koma fram Helena Jónsdóttir danshöfundur og Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld. Þetta landsþekkta listafólk leiðir hér saman hesta sína í fyrsta sinn. Í þættinum velta þau fyrir sér samruna skynfæranna og mörkunum á milli dansins og hversdagslegrar líkamstjáningar. Líkamstjáning er einmitt uppspretta danshreyfinganna í dulmögnuðu verki þáttarins. Tengsl hins yfirskilvitlega við dansinn eru könnuð, farið yfir sögu danskennslu á Íslandi og fjallað um mismunandi tilfinningaástand sem dansinn kallar gjarnan fram.


4. Áskell Másson og Lára Stefánsdóttir.

spila fimmtudagur 16. feb. 2012 kl. 20.40 - Smelltu hér til að horfa á þáttinn

Áskell Másson tónskáld og Lára Stefánsdóttir danshöfundur. Hér er fjallað um hlutverk dansins í mótun samfélaga, og hvernig dansinn hjálpar okkur að komast handan við rökræna hugsun, inn í óræða veröld töfra og spásagna. Þau Áskell og Lára hafa bæði mikinn áhuga á dulrænum málefnum, og í þættinum velta þau fyrir sér dauðanum og lífi eftir dauðann, í eiginlegri og óeiginlegri merkingu.


5. Daníel Bjarnason og Margrét Bjarnadóttir.

fimmtudagur 23. feb. 2012 kl. 20.40. Endursýnt: 27. feb. 2012 kl. 18.25

Daníel Bjarnason tónskáld og Margrét Bjarnadóttir danshöfundur. Í þættinum er sagt frá sálarangist og sigrum og fjallað um samruna ólíkra tónlistarstefna og sameiningu listgreina í nútímadansinum. Tengsl nútímadansins við leikhúsið og staða hans í þjóðfélaginu er skoðuð. Í dulmögnuðu verkinu sem er sýnt í lok þáttarins spilar blekkingin stórt hlutverk.


6. Ólöf Arnalds og Erna Ómarsdóttir

fimmtudagur 1. mars 2012 kl. 20.40. Endursýnt: 5. mars 2012 kl. 18.25

Erna Ómarsdóttir danshöfundur og Ólöf Arnalds tónskáld. Fjallað er um öskrið sem listræna tjáningu og hvernig munnurinn getur framkallað danshreyfingar. Þær Erna og Ólöf hafa vakið gríðarlega athygli erlendis á undanförnum árum. Í síðasta þætti Tónspora vinna þessar athyglisverðu listakonur saman í fyrsta sinn. Verk þeirra í lok þáttarins er gerólíkt því sem þær hafa áður gert. Hugtakið dans og tónlist er þar teygt lengra en flestir eiga að venjast.

Ljósmynd: Morgunblaðið

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica