Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Ragnar Kjartansson og Jessica Morgan í hópi vonarstjarna framtíðarinnar

2/12/2005

Að mati hins virta breska lista- og fréttatímarits Art Review er Jessica Morgan sýningarstjóri myndlistarþáttar Listahátíðar í Reykjavík 2005 í hópi þeirra 13 sýningarstjóra sem munu hafa mest áhrif á myndlistarheiminn á næstu árum. Er sýningarstjórnar hennar á Listahátíð fyrr á þessu ári sérstaklega getið í því samhengi. Þá vekur athygli að Ragnar Kjartansson myndlistarmaður er efstur á blaði í hópi tuttugu myndlistarmanna sem mestar vonir eru bundnar við í framtíðinni. Þetta kemur fram í desemberhefti Art Review sem kom út 2. desember. Ritstjóri þess, Rebecca Wilson, var ein fjölmargra blaða- og fréttamanna sem heimsóttu Ísland í tilefni Listahátíðar sl. vor. Í síðustu tveimur tölublöðum ársins notar hún tækifærið og fjallar um það sem helst bar til heimstíðinda á myndlistarsviðinu árið 2005. Fréttin um Ragnar er með þeirri yfirskrift að tímaritið hafi í leit sinni um heiminn fundið 20 unga listamenn sem skara fram úr. Í umfjöllun blaðsins er meðal annars sagt frá framlagi hans til Listahátíðar í Reykjavík í vor en sýning hans á hátíðinni var í Dagsbrún, undir Eyjafjöllum og vakti mikla athygli. Þá er líka sagt um Ragnar að hann hafi á skömmum tíma komist í fremstu röð myndlistarmanna yngri kynslóðarinnar hér á landi. Til gamans má geta þess að aðrir í hópi framtíðaráhrifavalda að mati Art Review eru sambýlismaður Jessicu, Jens Hoffman, forstöðumaður International Center for Contemporary Art í London, sem einnig kom hingað og tók þátt í Listahátíð og stýrði m.a umræðum í Listasafni Reykjavíkur, að auki er að finna á listanum blaðamanninn Linu Dzuverovic stofnanda ELECRTA, umboðsskrifstofu sem sérhæfir sig í samstarfsverkefnum á sviði samtímalistar. Hún var í hópi fjölmargra blaðamanna sem sóttu síðustu Listahátíð og skrifaði í kjölfarið lofsamlegar greinar um hátíðina bæði í Contemporay og The Wire. Listahátíð í Reykjavík 2006 verður haldin dagana 12. maí til 2. júní og verður hún að þessu sinni helguð tónlist. Gaman er að geta þess að hátíðin í vor er sú tuttugasta í röðinni frá stofnun Listahátíðar árið 1970. Dagskrá hátíðarinnar 2006 verður kynnt formlega eftir áramót.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica