Art in America fjallar um Listahátíð
26/10/2005
Eitt stærsta myndlistartímarit heims, Art in America, birtir í nýútkomnu nóvemberhefti sínu sex heilsíður um myndlistarsýningarnar á Listahátíð 2005 og afar lofsamlega og ítarlega umfjöllun um þær. Birtar eru myndir af verkum íslenskra og erlendra listamanna sem tóku þátt í verkefninu og eru myndirnar teknar af verkum þeirra í söfnum og galleríum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og úti á landsbyggðinni. Lilly Wei, sem skrifar greinina, fjallar einnig um nokkra aðra tengda listviðburði, t.d. sýningu myndarinnar “Gargandi snilld”, sögu Listahátíðar og loks um flugið í kringum Ísland, “sem var á vissan hátt stjarna þessarar heitu og köldu “state of the art” hátíðar". Hér má skoða greinina, sem skiptist í þrjú skjöl Art in America I, Art in America II, Art in America III Önnur umfjöllun
Senda grein