VOLODOS KEMUR Á LISTAHÁTÍÐ Í VOR - MIÐASALA Í FULLUM GANGI
Miðasalan rýkur af stað á einleikstónleika rússneska píanóleikarans Arcadi Volodos sem fram fara í Hörpu, Eldborg, sunnudaginn 20. maí 2012 kl. 20.00.
Hægt er að kaupa miða hér og í síma 528 5050.
SMELLTU HÉR TIL AÐ KAUPA MIÐA
Arcadi Volodos er talinn einstakur meðal píanóleikara og þykja tækni hans og tjáning óviðjafnanleg. Hann sver sig í ætt við gömlu meistarana hvað varðar frelsi í leik og tónmyndun. Að margra mati virðist tækni hans engin takmörk sett og hann á jafn auðvelt með að spila á tilfinningastrengi með undursamlegum einfaldleika og næmni og að framkalla stórkostlegar flugeldasýningar.
Efnisskrá á tónleikunum í vor:
• Sónata í a-moll, D 784 (ópus 143) eftir Franz Schubert
• Þrjú Intermezzo ópus 117 eftir Johannes Brahms
• Sónata í h-moll eftir Franz Liszt
Verðlaun og viðurkenningar
Arcadi Volodos hlaut hin virtu verðlaun, Gramophone Award, fyrir nýjustu geislaplötu sína Volodos in Vienna árið 2010, sem bestu hljóðfæraupptöku ársins. Fyrsta geislaplata Volodos, sem kom út árið 1997, fékk frábærar viðtökur og innihélt m.a. verk eftir hann sjálfan. Platan var tilnefnd til fjölda verðlauna og fékk einstaka dóma og í kjölfarið var honum boðið að koma fram í mörgum af stærstu tónlistarhúsum heims. Volodos hefur leikið með þekktustu hljómsveitum og stjórnendum í heimi s.s. Fílharmóníunum í Berlín, New York, Ísrael og London.
Nokkrar umsagnir um Arcadi Volodos:
Ég hef lengi litið upp til Arcadi Volodos, hann er einstakur meðal núlifandi píanista. Það er mikill stórviðburður að fá hann á Listahátíð 2012. Víkingur Heiðar Ólafsson, píanóleikari
Volodos er goðsögn í lifanda lífi: fimur, kraftmikill og ljóðrænn. Það er langt síðan píanisti í þessum klassa hefur haldið einleikstónleika á Íslandi. Þetta verður tvímælalaust stórviðburður í íslensku tónlistarlífi. Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarfræðingur
Volodos er einn fárra listamanna sem eiga svo auðvelt með að spila á hljóðfærið að tónlistin kemur til manns án fyrirstöðu, skínandi og tær. Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanóleikari og tónlistarstjóri Hörpu
Volodos er listamaður í hæsta gæðaflokki. Ég var svo heppinn að sjá hann leika einleik með Fílharmóníusveit Berlínar fyrir nokkrum árum og það var ógleymanlegt. Það er sannkallaður hvalreki fyrir Íslendinga að fá hann hingað til lands og að eiga þess kost að heyra hann spila í hinum frábæra Eldborgarsal í Hörpu. Daníel Bjarnason, tónskáld og stjórnandi
Heimasíða Arcadi Volodos http://www.volodos.de/

