Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

(Ó)SJÁLFSTÆTT FÓLK // (IN)DEPENDENT PEOPLE

25/11/2011

  • Jonatan Habib Engqvist

Frumkvæði listamanna og samstarf

Norræn samtímalist leggur undir sig sýningarstaðina á Listahátíð 2012.

Listahátíð í Reykjavík í samstarfi við Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur, Nýlistasafnið, Norræna húsið og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar undirbýr nú umfangsmikið myndlistarverkefni fyrir Listahátíð 2012. Verkefnið hefur hlotið styrk úr norrænum sjóðum og hefur ráðið til sín sýningarstjórann Jonatan Habib Engqvist sem mun stýra verkefninu ásamt verkefnisstjóra, Kristínu Scheving.

Hvað merkir að vera norrænn myndlistarmaður árið 2012?

Sjónum verður beint að samspili grasrótarstarfs og safna í norrænni myndlist. Hvaða þýðingu hefur það að vera norrænn myndlistarmaður árið 2012 er ein þeirra spurninga sem sýningarstjórinn vinnur út frá, en hann þróar nú hugmyndina, rannsakar og velur listafólk til þátttöku. Listamennirnir verða flestir frá Norðurlöndunum þ.m.t. Íslandi. Haldið verður málþing í tengslum við sýningarnar þar sem rætt verður um samstarf og frumkvæði listamanna. Jafnframt verður fjallað um samvinnugrundvöll milli norrænna listamanna og sýningarstaða.

Sýningarnar hefjast við upphaf Listahátíðar í vor

Sýningarnar verða í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur, Nýló, Norræna húsinu og víðar. Viðburðurinn verður vel kynntur á erlendri grundu og í tilefni viðburðarins verður boðið hingað virtum erlendum blaðamönnum víðs vegar að úr heiminum.

Sýningarnar hefjast allar við upphaf Listahátíðar í vor, dagana 19.-20. maí og þær munu svo flestar standa fram eftir sumri.

Um sýningarstjórann

Jonatan er listheimspekingur, rithöfundur og sýningarstjóri búsettur í Stokkhólmi. Hann hefur unnið að alþjóðlegum sýningum og verkefnum undanfarin ár, meðal annars sem sýningarstjóri á Moderna museet i Stokkhólmi. Hann hefur jafnframt starfað sem ritstjóri og skrifað greinar fyrir ýmis erlend tímarit. Hann hefur einnig haldið fyrirlestra um heimspeki, list og arkitektúr.


Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica