Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Bergmál í Japan á Expó

12/7/2005

Stór hópur listamanna kom fram á Íslandsdeginum í Japan 15. júlí s.l. Stærsta verkefnið, Bergmál, var frumflutt á Listahátið í vor og framleitt með fyrirhugaðan flutning í Japan í huga. Verkið er eftir Ragnhildi Gísladóttur og textann gerði SJÓN, tveir kórar tóku þátt í því, Skólakór Kársness og Barna- og Kammerkór Biskukpstungna, en Þórunn Björnsdóttir stjórnaði. Einnig komu fram þeir Hilmar Örn Agnarsson og Sigtryggur Baldursson að ógleymdum slagverksleikaranum Stomu Yamatsha, sem þarna kom fram á heimavelli, en hann er þekktasti slagverksleikari Japans. Mikill fjöldi hlýddi á Bergmál, eða á þriðja þúsund manns og var mikil ánægja með verkið, svo og alla dagskrá Íslendinganna, en nálægt 100 íslenskir listamenn tóku þátt í þessum hátíðardegi.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica