Myndlistarsýningum lokið
14/7/2005
Öllum myndlistarsýningunum sem voru á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík er nú lokið. Sunnudagurinn 21. ágúst var síðasti sýningardagur á Lest, yfirlitssýningu á verkum Dieters Roth í Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands og Gallerí 100°. Þann dag lauk einnig öðrum sýningum undir yfirskriftinni Tími – Rými – Tilvera á nokkrum söfnum í Reykjavík og nágrenni. Listahátíð í Reykjavík 2005 hefur fengið geysimikla umfjöllun í erlendum blöðum og tímaritum. Einkanlega hefur verið til þess tekið hve mikið var ritað um hátíðina áður en hún hófst. Í ljósi þess að hátíðin lagði nú í fyrsta sinn megináherslu á myndlist verður það að teljast góður árangur en mikil vinna fór einmitt í forkynningu á hátíðinni bæði hér heima og erlendis m.a. með blaðamannafundum í London, New York, Berlín og Kaupmannahöfn. Birst hafa ítarlegar greinar sem að mestu fjalla um myndlistarþátt hátíðarinnar en greina þó margar hverjar einnig frá hátíðinni í heild sinni, sögu hennar og ekki síst landi og þjóð. M.a. var nýlega að finna greinargóða umfjöllun í hinu virta og víðlesna þýska dagblaði Rheinischer Merkur sem hefur aðsetur í Bonn en dreifingu um allt Þýskaland. Greinin er skrifuð af blaðamanninum Clemens Bomsdorf en hann var hér á landi í nokkra daga í tengslum við opnun Listahátíðar í Reykjavík. Honum fannst mikið til hátíðarinnar koma en í grein sinni skrifar hann m.a: “Ef litið er til listafólksins sem tekur þátt og gestanna sem komnir eru erlendis frá má gera ráð fyrir að hátíðin fái alla þá alþjóðlegu athygli sem til er ætlast.” Frá hátíðinni áður en hún hófst hafa m.a. fjallað blöð á borð við New York Time Style Magazine, sem lesið er af tæpum 2 milljónum manna og ítarlega forsíðuumfjöllun með áherslu á Dieter Roth var að finna í Art Review, áhugaverð skrif mátti einnig sjá í danska vikuritunu Alt for damerne, Apollo, sem er alþjóðlegt tímarit um listir og listmuni, The Art Newspaper, Metropolis Magazine, Art in America, ArtForum, Tema Celeste, Dwell Magazine og fleiri tímaritum. Þá hafa fjölmargir þekktir vefmiðlar gefið hátíðinni gaum og fjallað vel og ítarlega um hana. Má þar nefna vefútgáfuna af ArtForum en þar fór blaðamaðurinn Mark Sladen sérstaklega fögrum orðum um hringflugið sem helgað var myndlistarsýningunum úti á landi, ArtDaily.com hefur vakið athygli á hátíðinni með áberandi hætti og Artkrush.com, svo nokkur dæmi séu tekin. Einnig má nefna að hingað komu tveir virtir útvarpsmenn frá Þýskalandi og hafa þeir gert hátíðinni sérstaklega góð skil, meðal annars í þýska þjóðarútvarpinu DLF German radio, í BR Munchen radio var líka fjallað um hátíðina og í útvarpsstöðunum Deutshlandfunk radio ásamt Deutslandsradio Kultur radio og fleirum. Hér fyrir neðan má lesa nokkrar þeirra greina sem birst hafa í erlendum greinum og tímaritum. Þýsku greinarnar hafa verið þýddar á íslensku en hinar eru á ensku. Þá er von á frekari umfjöllun í mörgum ofangreindra blaða auk annarra sem hafa verið í sambandi við Listahátíð upp á síðkastið til þess að afla frekari gagna um hátíðina. Artkrush Art Forum Art Review Domus Flash Art Modern Painters Rheinischer Merkur Suddeutsche Zeitung
Senda grein