Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Glæsilegt sýningarrit komið út

13/7/2005

Komið er út glæsilegt sýningarrit með myndum af listaverkum frá myndlistarþætti Listahátíðar í Reykjavík 2005. Bókin ber nafnið Material time, work time, life time og hefur að geyma ljósmyndir úr vinnustofum Dieters Roth og af verkum listamannsins frá sýningunni Lest sem nú stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands og Gallerí 100° ásamt myndum þrjátíu og fjögurra listamanna sem unnu verk sín sérstaklega fyrir Listahátíð undir heitinu Tími, rými, tilvera. Listaverkin voru og eru sum hver enn að finna víðsvegar um landið, m.a. á Skógum, Akureyri, Ísafirði, Seyðisfirði, Vestmannaeyjum, Undir Eyjaföllum, í Hveragerði og í ýmsum listasöfnum í Reykjavík ásamt Kópavogi og Hafnarfirði. Bókinni fylgir sýningarskrá með viðtölum við listamennina: Jennifer Allora & Guillermo Calzadilla, Micol Assaël, Matthew Barney, Margrét Blöndal, John Bock, Libia Pérez de Siles de Castro & Ólafur Árni Ólafsson, Jeremy Deller & Alan Kane, Ólafur Elíasson, Peter Fischli & David Weiss, Hreinn Friðfinnsson, Gabríela Friðriksdóttir, Kristján Guðmundsson, Elín Hansdóttir, Thomas Hirschhorn, Carsten Höller, Hekla Dögg Jónsdóttir, Brian Jungen, Ragnar Kjartansson, Elke Krystufek, Gabriel Kuri, John Latham, Anna Líndal, Jonathan Meese, Finnbogi Pétursson, Bojan Sarcevic, Wilhelm Sasnal og Lawrence Weiner. Bókin er tæpar 200 síður og litprentuð hjá Odda. Sýningarskráin er prentuð hjá prentsmiðju Morgunblaðsins. Jessica Morgan og Björn Roth önnuðust sýningarstjórn og ritstjórn. Ljósmyndirnar í bókinni eru eftir Friðrik Örn Hjaltested en myndir úr vinnustofum Dieters Roth eru eftir Magnús Reyni Jónsson. Hönnun ritverksins var í höndum Barkar Arnarsonar og Gunnars Thor Vilhjálmssonar en Dorothée Kirsch sá um framkvæmdastjórn. Yfirumsjón með verkinu hafði Sigurjón Sighvatsson. Verkið var unnið að frumkvæði Eiðastóls sem einnig sá um grunnfjármögnun þess í samvinnu við KB-banka, Odda og 66°N en auk þess tóku Listasafn Íslands, Listasafn Reykjavíkur og Listahátíð í Reykjavík þátt í verkefninu. Með Eiðastóli tekur hið virta þýska útgáfurfyrirtæki Revolver þátt í útgáfunni og sér um dreifingu bókarinnar um allan heim en fyrirtækið býr yfir þekkingu og reynslu á sviði samtímalistar. Sýningarritið verður til sölu í Listasafni Reykjavíkur og Listasafni Íslands frá og með miðvikudeginum 29.júní 2005.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica