Afar góð aðsókn á Listahátíð
Listahátíð í Reykjavík, sem hófst laugardaginn 14. maí með opnun á sýningu á verkum Dieter Roth í Listasafni Reykjavíkur, lauk formlega sunnudaginn 5. júní, daginn eftir glæsilega lokatónleika hátíðarinnar í Háskólabíói með sænsku mezzósópransöngkonunni Anne Sofie von Otter og Bengt Forsberg píanóleikara. Aðsókn á hátíðina var með albesta móti en uppselt var á nær alla viðburðina og sérlega góð aðsókn hefur verið á myndlistarsýningar sem halda allflestar áfram frameftir sumri.
Í upphafi hátíðar hvíldi mesti þunginn á myndlistinni. Samhliða setningu hátíðarinnar var Dieter Roth sýningin Lest opnuð í þremur listasöfnum í Reykjavík; Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands og Galleríi 100°. Sama dag voru opnaðar fjölmargar myndlistarsýningar í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi undir yfirskriftinni Tími rými tilvera og daginn eftir myndlistarsýningar í hverjum landsfjórðungi, eða Ísafirði, Akureyri, Seyðisfirði, Eiðum og Vestmannaeyjum og einnig í Hveragerði og Dagsbrún undir Eyjafjöllum. Lagt var upp í eftirminnilegt hringflug um landið á hvítasunnudag með 100 manns á tveimur fokkerflugvélum Flugfélags Íslands til þess að skoða myndlistarsýningarnar úti á landi. Hringflugið þótti takast einstaklega vel og hafa fjölmargir erlendir blaðamenn, sem fóru í flugið og eru nú hver á fætur öðrum að skrifa um reynslu sína hér á landi í erlend blöð og tímarit, haft sérstakt orð á að þeim hafi þótt hringflugið hápunktur hátíðarinnar.
Fyrstu helgina voru jafnframt tónleikar með barkasöngvurunum í Huun Huur Tu í Nasa og fyrstu Beethoven tónleikarnir af þremur í Ými kl. 11.00 fyrir hádegi á sunnudagsmorgninum. Uppselt var á þá viðburði. Mynd á þili í Þjóðminjasafninu opnaði á annan í hvítasunnu og stendur sú sýningin enn yfir og 17. og 18. maí voru Autobahn-leiklestrar byggðir á verkum fjögurra þýskra leikritahöfunda í Borgarleikhúsinu. Bergmál Ragnhildar Gísladóttur, Stomu Yamash'ta og Sjón náði til margra en það var næst á dagskrá hátíðarinnar. Tvennir Bergmálstónleikar voru haldnir, hinir fyrri í Skálholtsdómkirkju og síðari í Langholtskirkju. Uppselt var löngu áður á báða tónleikana. Uppselt var einnig aftur þegar þau Sigrún Eðvaldsdóttir konsertmeistari og Gerrit Schuil píanóleikari fluttu annan hluta Beethoven-sónatanna, sunnudagsmorguninn 22. maí. Greinilegt var að auk framúrskarandi tónlistarmanna var nýi tónlistartíminn, þ.e messutíminn kl. 11.00 líka að slá í gegn.
Mikill tónlistarþungi hvíldi á þriðju helgi hátíðarinnar en þá voru hér stödd meðlimir Pacifica-kvartettsins frá Bandaríkjunum, fransk/íslenka söngparið Lady & Bird og hin portúgalska Mariza ásamt hljómsveit sem öll vöktu mikla athygli og fengu frábæra dóma fyrir frammistöðu sína á hátíðinni. Sömu helgina var efnt til danshátíðar á Listahátíð þar sem fram komu úrvals dansflokkar frá Tékklandi, Frakklandi og Finnlandi og þriðji hluti Beethoven tónleikana fór fram, enn og aftur fyrir fullu húsi. Þegar hér var komið sögu var Listahátíð farin að styttast í annan endann enda nýr mánuður runninn upp en þó eftir viðburðir eins og víóluhátíðin, franski sirkusinn og tónleikar með Anne Sofie von Otter og Bengt Forsberg sem að margra mati var hápunktur hátíðarinnar. Alls voru sýningarnar á sirkusnum með söguna um Gústa trúð fjórar og fullt var á þær allar og víólusnillingurinn Yuri Bashmet sem lék með Sinfóníuhljómsveit Íslands heillaði áheyrendur.
