Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Von Otter og Forsberg mikið fagnað

5/6/2005

Listahátíð í Reykjavík lauk sunnudaginn 5. júní. Fimmtudagskvöldið 2. júní stjórnaði Yuri Bashmet víóluleikari Sinfóníuhljómsveit Íslands og kom einnig fram með henni en hann er að mörgum talinn einn fremsti tónlistarmaður samtímans. Koma hans á Listahátíð var hluti af alþjóðlegri víóluráðstefnu sem stóð yfir 2. til 5. juní. Tónleikarnir voru í Háskólabíói og var feikilega vel tekið. Af sama tilefni var efnt til glæsilegra víólutónleika í Ými föstudagskvöldið 3. júní. Þar voru frumflutt ný verk eftir Hafliða Hallgrímsson, Daníel Bjarnason og Garth Knox. Einleikarar voru Garth Knox og Þórunn Ósk Marinósdóttur víóluleikarar. Tónleikarnir í Ými sem voru í samvinnu við Víólufélag Íslands voru afar vel sóttir. Hápunktur lokahelgarinnar voru svo ljóðatónleikar með hinni dáðu sænsku mezzósópransöngkonu Anne Sofie von Otter og Bengt Forsberg píanóleikara í Háskólabíói. Það var fyrir löngu uppselt á þá og eins og við var að búast var listamönnunum sérlega vel tekið. Fagnaðarlátununum ætlaði raunar aldrei að linna svo úr varð að ljóðasöngduóið tók þrjú aukalög í lok tónleikanna. Þá er ótalinn franski sirkusnum sem var með lokasýningu á Hafnarbakkanunum mánudaginn 6. júní. Fullt hús var á allar fjórar sýningar Cirque á Listahátíð í Reykjavík.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica