Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Fullt á allar fjórar sirkussýningarnar

29/5/2005

Gústi trúður og félagar hans léku í síðasta sinn listir sínar í skrautlega tjaldinu á Miðbakkanum á mánudagskvöldið 6. júní. Það var sirkusinn Cirque sem skemmti börnum á öllum aldri á Listahátíð í Reykjavík dagana 2. til 6. júní. Sirkustjald setti mikinn svip á Hafnarbakkann í miðbæ Reykjavíkur og fullt var á allar sýningarnar sem voru alls fjórar talsins. Þá var sirkusskólinn, sem efnt var til á Listahátið, vel sóttur og fengu krakkarnir sem hann sóttu að bregða á leik í ýmsum sirkusbörgðum, sbr. sirkustakti, keilubrögðum, andlitsmálningu og fleiru. Sirkusinn er samvinnuverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Hátíðar hafsins og Símans.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica