Innsetningarnar á Grund og í Vatnstönkunum
26/5/2005
Innsetningar Finnboga Péturssonar í Vatnstönkunum við Háteigsveg og þeirra Jeremy Dellers og Alan Kane á elliheimilinu Grund hafa vakið verðskulda athygli á Listahátíð en þess má geta að þeir síðarnefndu gáfu íbúum Grundar verk sitt sem stór og litríkur samóvar ásamt tekatli. Hægt er að skoða innsetninguna Dellers og Kane á Grund alla virka daga vikunnar frá kl. 13:00 til 17:00 á meðan á hátíðinni stendur og njóta um leið félagsskapar þeirra sem þar búa. Einnig er vert að vekja athygli á því að Vatnstankarnir við Háteigsveg eru opnir alla daga frá kl. 13:00 til 17:00 nema á sunnudögum þar til hátíðinni lýkur 5. júní. Eftir það er opið skv. samkomulagi. Passa á allar myndlistarsýningar Listahátíðar í Reykjavík má fá í miðasölu Listahátíðar í Bankastræti 2 á aðeins 1000 kr. Miðasalan er opin frá kl. 12:00 til 18:00 á virkum dögum og frá kl.12:00 til 16:00 um helgar.
Senda grein