Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Viðbuðrarrík Listahátíðarhelgi framundan

27/5/2005

Margt verður um að vera á Listahátíð í Reykjavík um helgina, en hún er sérlega stór í sniðum þegar kemur að listviðburðum. Meðal gesta á hátíðinni eru portúgalska fadodívan Mariza sem skemmtir gestum á Broadway á föstudags- og laugardagskvöld, 27. og 28. maí, ásamt hljómsveit og hefjast báðir tónleikarnir kl. 21:00. Uppselt er á föstudagskvöldið en enn eru til miðar á tónleikana á laugardagskvöldið. Miðasalan í Bankastræti 2 er opin á laugardag frá kl. 12:00 til 16:00 en færir sig svo yfir í Broadway kl. 19:00.á laugardag. Pacifica kvartettinn, sem er talinn einn besti kvartett í heiminum í dag, kom til landsins á fimmtudag og lék hann síðla dags fyrir fanga á Litla-Hrauni en það mun í vera í fyrsta sinn á Íslandi sem fangar þar á bæ fá heimsókn sem þessa. Tvennir tónleikar verða svo með Pacifica í Íslensku óperunni. Þeir fyrri verða á laugardag kl. 15:00 þar sem m.a. verður leikinn Mendelsohn strengjakvartett op. 13, Ruth Crowford Seeger strengjakvartett, strengjakvartett eftir Þorkel Sigurbjörnsson og Beethoven op 131. Daginn eftir eða á sunnudag 29. maí verður eitt frægasta nútímaverk okkar tíma, Black Angels, eftir George Crumb, leikið í heild sinni. Pacifica mun svo halda til Ísafjarðar 4. júní og halda tónleika í Hömrum. Miðasala á Pacificu er í miðasölu Listahátíðar og svo klukkustund fyrir tónleika í Íslensku óperunni. Lady and Bird koma fram á afar spennandi tónleikum í Íslensku óperunni á laugardag en það dúó skipa þau Barði og Keren Ann sem um þessar mundir er ein skærasta poppstjarna Frakklands. Tónleikarnir verða með kór og hörpuleikaranum Monicu Abendroth. Aðeins örfá sæti eru laus á þá tónleika. Danshátíð á Listahátíð er svo meðal stórra viðburða helgarinnar. Hátíðin hefst á föstudagskvöld með dansflokki frá Frakklandi sem nefnir sig Rialto Nomade Fabrik. Sú sýning er kl. 20:00. Á sunnudag verða svo tvær sýningar í Borgarleikhúsinu; Nomandi Production frá Finnlandi kl. 17:00 og Tanec Praha frá Tékklandi kl. 20:00. Miðaverð á allar þrjár sýningarnar er 5500 kr. En á eina sýningu kostar 2500 kr. Miðasala fer fram í Bankastræti 2 en einnig á húsunum klukkustund fyrir viðburðinn.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica