Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Leiðsögn um helgina

28/5/2005

Leiðsögn verður um Dieter Roth-sýninguna Lest í Listasafni Reykjavíkur og Listasafni Íslands á sunnudag 5. júni kl. 14:00 og kl. 16:00 en mikil aðsókn hefur verið á Lest, sem auk þess að vera í þessum tveimur stærstu söfnum landsins er einnig að finna í Gallerí 100°, Bæjarhálsi 1. Þar var leiðsögn á laugardag 4. maí kl. 15:00 með Birni Roth sýningarstjóra Dieter Roth sýningarinnar. Á sunnudag 5. júní kl. 15:00 verður svo Finnbogi Pétursson með leiðsögn um eigin sýningu sem er í Vantstönkunum við Háteigsveg. Mikil aðsókn hefur einnig verið á aðrar myndlistarsýningar Listhátíðar í Reykjavík bæði í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi og úti landi. Hádegisleiðsögn verður einnig hægt að njóta á þriðjudag 7. júní í Listasafni Reykjavíkur og Listasafni Íslands kl. 12:10. Myndlistarmenn annast leiðsögnina á söfnunum. Þeir skoða sýningarnar ásamt gestum og taka þátt í umræðum um verkin. Heyrnarlausir geta óskað eftir táknmálstúlki með minnst þriggja daga fyrirvara. Þess má geta að þótt Listahátíð ljúki formlega í dag, sunnudag, munu myndlistarsýningarnar halda áfram í söfnun og galleríum.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica