Einstaklega vel lukkað hringflug
17/5/2005
Flugfélag Íslands í samstarfi við við Listahátíð í Reykjavík og samönguráðuneytið efndi til sérstaks hringflugs á Hvítasunnudag í tengslum við opnun myndlistarsýninganna, Tími, rými, tilvera á Listahátíð um land allt. Flogið var frá Reykjavík til Ísafjarðar kl. 8:30 um morguninn á opnun sýninga Elínar Hansdóttur í Edinborgarhúsinu og Hreins Friðfinnssonar í Slunkaríki. Nokkru síðar var lent á Akureyri og tekið hús á Listasafninu á Akureyri á sýningu tvíeykisins Matthew Barney og Gabríelu Friðriksdóttur. Næsti áfangastaður var flugvöllurinn á Egilsstöðum og þaðan sem ekið var beint á Eiðar og ljósmyndir Dieter Roth, sem sýndar eru í sérstökum ferðaskúr, barðarar augum. Frá Eiðum var haldið til Seyðisfjarðar á sýningu Önnu Líndal í Skaftfelli. Aftur var ekið á Egilsstaði og flogið þaðan til Vestmannaeyja, þar sem rúta ók með gesti upp að Eldfelli til þess að skoða uppákomu ungu listakonunnar Micol Assaël frá Ítalíu. Alls tóku 100 manns sér ferð með hringfluginu, þar með talið forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjórinn í Reykjavík en ferðin endaði um kvöldmatarleytið. Margir erlendir sem innlendir listunnendur voru með í för, auk fjölda erlendra blaðamanna frá virtum blöðum og tímaritum auk kínverska ríkissjónvarpsins sem hefur einna mest áhorf í heiminum. Það var mál manna að ferðin hefði verið einstaklega vel lukkuð og ekki skaðaði að veðrið var afar gott en sól var og heiðskírt. Þá má ekki gleyma frábærum viðtökum heimamanna á hverjum stað úti á landi sem tóku á móti menningarferðalöngum með pompi og prakt.
Senda grein