Sjónvarpsþáttur um Listahátíð 2005
7/5/2005
Þáttur um glæsilega viðburði Listahátíðar í Reykjavík 2005 verður endurtekinn í Sjónvarpinu á þriðjudag 10. maí kl. 16:35. Í þættinum eru sýnd myndbrot frá þeim listamönnum sem koma til landsins í vor og talað við þá sem þekkja til listamannanna. Fjallað var um Anne Sofie von Otter mezzósópransöngkonu, Christoph Shlingensief leikstjóra, Mynd á þili í Þjóðminjasafninu, barkasöngvarana í Huun Huur Tu frá Tuva, Bergmál Ragnhildar Gísladóttur, Danshátíð á Listahátíð, Lady and Bird, Víóluhátíðina, fadosöngkonuna Marizu frá Portúgal, Sigrúnu Eðvaldsdóttur og Gerrit Schuil sem flytja sónötur Beethovens og skyggnst inn í söguna um Gústa trúð sem er í höndum fjörlegs Sirkus sem hreiðra mun um sig á hafnarbakkanum í byrjun júní.
Senda grein