Verk Dieters Roth komin til landsins
30/4/2005
Mikil eftirvænting ríkti í Listasafni Íslands, Listasafni Reykjavíkur og hjá Listahátíð í Reykjavík fimmtudaginn 28. apríl þegar fimm gámum með verkum Dieters Roth var rennt upp að söfnunum. Loka þurfti Laufásvegi tímabundið til þess að sá hluti þeirr sem fer upp í Listasafni Reykjavíkur kæmist að húsinu. Í gámunum voru 300 listaverk eftir Dieter Roth sem fara á sýningu safnanna en þetta er í fyrsta sinn í sögu þeirra sem þau standa saman að einu sýningarverkefni en auk þeirra verða verk Dieters Roth sýndi í Galleríi 100° í húsi Orkuveitunnar. Sýning Dieters Roth er lang stærsta verkefni Listahátíðar í Reykjavík 2005 en hátíðin í ár er helguð alþjólegri samtímamyndlist undir yfirskriftinni Tími rými tilvera. Sýningarstjórar eru þau Björn Roth og Jessica Morgan.
Senda grein