Miðasala Listahátíðar opin alla helgina
30/4/2005
Miðasala Listahátíðar í Bankastræti 2 er opin alla helgina frá 12:00 til 16:00 en daglega er hún opin frá kl. 12:00 til 18:00. Nú er einnig hægt að kaupa passa sem gildir á allar myndlistarsýningar Listahátíðar í Reykjavík frá 14. maí til 5. júní. Verð hans er aðeins 1000 krónur. Passinn gildir hvort sem er í listasöfn eða gallerí i Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi eða úti á landi meðan á hátíðinni stendur.
Senda grein