LJÓSMYNDASÝNINGAR OPNAR ÁFRAM
Á Listahátíð í ár var áhersla lögð á ljósmyndir með fjölda ljósmyndasýninga í galleríum, söfnum og á götum úti. Standa flestar þeirra fram á sumar þótt formlegri dagskrá hátíðarinnar sé lokið. Sýningin Raunveruleikatékk verður í miðborginni til 28. júní, þegar hluti hennar verður tekinn niður og færður út á landsbyggðina. Sýning Cindy Sherman, Untitled Film Stills, stendur fram á haust í Listasafni Íslands og í Listasafni Reykjavíkur standa sýningarnar Annað auga og Nekt yfir til 22. ágúst. Allar nánari upplýsingar um opnunartíma allra ljósmyndasýninga á Listahátíð má finna hér.

