MIKIL ÞÁTTTAKA OG STJÖRNUREGN
Mjög góð aðsókn var á viðburði Listahátíðar í ár sem voru yfir sextíu talsins með þátttöku hátt í sex hundruð listamanna, erlendra sem innlendra. Dagskráin var mjög fjölbreytt með tónleikum kvölds og morgna, stórtónleikum í Laugardalshöll, leikhús- og djassveislu, útileikhúsi fyrir börn og opnun yfir 20 ljósmyndasýninga. Samstarf erlendra og innlendra listamanna var áberandi á hátíðinni í ár sem og breidd þeirra viðburða sem á dagskrá voru. Upplestrar og tónleikar fóru fram í vinnustofum myndlistarmanna og á heimilum rithöfunda, þar sem hvert sæti var setið. Hafa viðburðir hátíðarinnar hlotið mjög jákvæð viðbrögð áhorfenda og gagnrýnenda, sem lofað hafa dagskrána í ár eins og fjölmargir góðir dómar bera vitni um.
Meðal tónleika sem hlutu fjórar og fimm stjörnur gagnrýnenda voru tónleikar norska píanósnillingsins Leif Ove Andsnes og þýsku systkinanna Christian og Tanja Tetzlaff, tónleikar Bedroom Community í Þjóðleikhúsinu, tónleikar Kammerkórsins Carmina sem í tvígang fylltu Kristskirkju og morguntónleikaröð Ágúst Ólafssonar og Gerrit Schuil í Fríkirkjunni, þar sem kirkjan nötraði af fagnaðarlátum áhorfenda í lok flutnings þeirra á Svanasöng Schuberts. Megas sýndi á sér glænýjar hliðar fyrir troðfullu Háskólabíói, framandi tónar finnska galdramannsins Kimmo Pohjonen féllu einnig í frjóan jarðveg tónleikagesta á Nasa og nokkrar kynslóðir dönsuðu sig saman inn í sumarið á stórskemmtilegum opnunartónleikum Amadou og Mariam í Laugardalshöll. Tónlistarhóparnir Adapter og Njúton frumfluttu framsækin íslensk verk og vöktu hrifningu fyrir flutning sinn á nútímatónlist. Dans- og leiksýningar hlutu einnig frábærar móttökur. Litháískir leikhústöfrar Rómeó og Júlíu í Borgarleikhúsinu verða lengi í minnum hafðir meðal íslenskra leikhúsgesta og í Þjóðleikhúsinu heilluðu þrjár óhefðbundnar sýningar áhorfendur á öllum sviðum leikhússins.
Hér er hægt að skoða brot úr umfjöllun gagnrýnenda um viðburði hátíðarinnar.








