ERLEND UMFJÖLLUN
Í tilefni Listahátíðar í Reykjavík 2010 kom hópur erlendra blaðamanna til Reykjavíkur. Að komu þeirra stóðu auk Listahátíðar; Höfuðborgarstofa, Ferðamálastofa og Útflutningsráð. Meðal fjölmiðla sem blaðamennirnir skrifa fyrir eru bandarísku blöðin The New York Post og Art in America, hið austurríska Der Standard, Art das Kunstmagasin í Þýskalandi, Pohjalainen í Finnlandi og Ritzau fréttastofan í Danmörku. Blaðamennirnir sóttu fjölmarga af þeim viðburðum sem voru á dagskrá Listahátíðar í ár og ræddu við fjölda listamanna sem tóku þátt í hátíðinni.
Meðal viðburða sem blaðamennirnir hrifust af auk ljósmyndasýninganna voru tónleikar kammerkórsins Carminu í Kristskirkju, leiksýningin Rómeó og Júlía frá Litháen, morguntónleikar Ágústs Ólafssonar og Gerrits Schuil í Fríkirkjunni og tónleikar Bedroom Community. Tilgangurinn með að bjóða blaðamönnunum til landsins er að kynna umheiminn fyrir þeim miklu möguleikum sem Ísland, og þá sérstaklega Reykjavík, hefur upp á að bjóða fyrir ferðamenn, m.a. á sviði menningar og lista. Blaðamennirnir kynntu sér margar hliðar borgarinnar og heimsóttu meðal annars tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu.
Hér má sjá brot af þeim greinum sem nú þegar hafa birst eftir blaðamennina og er þá ótalið fjöldi greina á vefsíðum og útvarpsumfjallanir.
Fleiri greinar bíða birtingar:
Grein í bandaríska blaðinu Art in America eftir Lilly Wei
Grein á vefsíðunni artnet.com eftir David D'Arcy
Grein í Studija eftir Irene Baranovska
Grein í Album, Der Standard eftir Bettina Stimeder
Greinar í finnska blaðið Pohjalainen eftir Laura Kurko-Kauranen:
Ljósmyndaumfjöllun
Um Vaasa hljómsveitinga og Caput

