Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR 

4/6/2010

  • Orchesta Chekara Flamenca á Listahátíð 2010

Nýliðin Listahátíð hlaut frábærar viðtökur og hlutu flestir viðburðir hátíðarinnar afar lofsamlega umfjöllun og stjörnuregn gagnrýnenda. Hér er hægt að lesa brot úr dómum sem viðburðir hátíðarinnar hlutu.

 *****Ævintýramyndir í Háskólabíói
Andsnes hefur einstaklega fallegan tón og spilar á píanóið eins og hann hafi aldrei gert neitt annað. Systkinin spiluðu líka afar fallega; mýkt fiðlunnar – sem er nýtt hljóðfæri, ekki gamall Stradivarius – var ótrúlega safarík og sónatínan eftir Dvorák var svo áhrifamikil að maður gleymdi stund og stað. Ævintýramyndirnar eftir Janacek voru sömuleiðis heillandi, sellóið skemmtilega rómantískt og píanóleikurinn fullur af merkingarþrungnum hendingum og hljómasamsetningum. Og tónsmíðarnar eftir Schumann voru ástríðuþrungnar og spennandi, maður dáðist sérstaklega að stígandinni í Fantasiestücke, sem var óvanalega markviss. Svona á kammermúsík að vera. (...) Maður gekk glaður út af þessum tónleikum. Morgunblaðið um tónleika Leif Ove Andsnes, Christian Tetzlaff og Tanja Tetzlaff

*****Mikilfenglegur Megas í nýrri vídd
39 árum eftir að Megas hrelldi fyrst íslenska borgarastétt kemur hann fram á Listahátíð. Hann hefur haldið sinn kúrs og hvergi beygt af. Og þá hlýtur þjóðin að hafa komið til hans. Megas vex með hverju verki og í Háskólabíói bættist enn ein skrautfjöðrin í þéttsetinn hatt hans.  (...) Þórður nálgast tónlist föður síns af viðeigandi virðingarleysi. Þannig hefur honum tekist að fara inn í tónlistina og töfra fram á þeim nýjar víddir. Morgunblaðið um stórtónleika Megasar, hljómsveitar, strengjasveitar og kórs

****½ Upphafinn endurreisnarseiður
...útkoman hitti beint í mark. (...)Unaður hlustandans var engu líkur. Morgunblaðið um tónleika Kammerkórsins Carmina

*****Ein stór fjölskylda
Þetta voru stórkostlegir tónleikar. Allir höfundarnir fengu að njóta sín og hljóðfæraleikararnir skiptust á að sýna snilld sína. (...)  Bedroom Community brýtur niður múra milli tónlistarheima. Fréttablaðið um tónleika Bedroom Community

****Kröftugur eftirskjálfti krúttkynslóðarinnar
Í heild sinni heppnuðust tónleikarnir gríðarlega vel (...) Það er gaman að sjá ólíka tónlistarmenn koma saman og styðja við bak hver annars í flutningi á verkum þeirra. Óvenjulegir tónleikar en stórskemmtilegir. Morgunblaðið um tónleika Bedroom Community

****½ Galdramaður á Nasa
Pohjonen kom mér helst fyrir sjónir sem töfralæknir úr grárri forneskju, og hann framkallaði ótrúlega galdra úr hljóðfærinu. (...) útkoman var merkilega heildstæð og falleg sinfónía náttúrukrafta og mannlegs hyggjuvits. Blæbrigðin í harmóníkuleiknum voru svo fjölbreytileg, sviðsframkoman svo mögnuð og oft óvænt að það var einfaldlega ekki hægt að láta sér leiðast. Frábærir tónleikar! Morgunblaðið um tónleika Kimmo Pohjonen

****Litháískir leikhústöfrar á Listahátíð
„Leikurinn var frábær. Það er greinilegt að langur æfingatími og fjöldi sýninga skilar sér í ótrúlegri samhæfingu og samspili milli leikara.“ Morgunblaðið um Rómeó og Júlíu

****½ Magnþrunginn galdur tónanna
Það var mikið ævintýri að hlusta á og sjá nokkra helstu nýdjasslistamenn Norðurlanda í Óperunni (...) Aftur á móti er eitt víst; svona spinna engir saman sem ekki þekkja hverja aðra til fullnustu í tónlistinni. Morgunblaðið um tónleika Sidsel Endresen og Marilyn Mazur

****1/2 Fjörug óperuveisla
Óhætt er að segja að endir Listahátíðar í Reykjavík hafi verið glæsilegur. Raunar vissi maður það áður en tónleikarnir byrjuðu.
Morgunblaðið um Óperuveislu Kristins Sigmundssonar

****Eru ekki allir í stuði?
Sjálfsagt er sá sem hér skrifar óhæfur til þess að gagnrýna opnunartónleika Listahátíðar með malíska tvíeykinu og hjónunum Amadou og Mariam, sökum þess að hann var í vímu mestalla tónleikana. Tónlistarlegri sæluvímu og danstransi, nánar tiltekið, líkt og hundruð áheyrenda sem sóttu þennan skemmtilega listviðburð. Morgunblaðið um tónleika Amadou & Mariam

Sjáðu með höndunum
Blindu malísku hjónin þau Amadou og Mariam losuðu heldur betur um limina stirðu og vöktu upp hömlulausa dansþörf hjá fólkinu í salnum, þar sem þau stóðu á sviði Laugardalshallarinnar síðastliðið miðvikudagskvöld og göldruðu með söng sínum og spilamennsku. Mikið sem við höfum gott af afrískri innspýtingu. Morgunblaðið um tónleika Amadou & Mariam í Laugardalshöll

****Skemmtilegur bræðingur
 Amadou og Mariam er hörku tónleikasveit. Tónlistin er sambland af afrískum ryþma, poppi og rokki. Hljóðfæraleikararnir voru allir fyrsta flokks og skiptust á að sýna snilldartakta, en það sem dreif tónlistina áfram og er grunnur hennar er gítarleikur Amadous. Frábær gítarleikari!  (...) Blindu hjónin frá Malí skiluðu frábærum tónleikum í Laugardalshöll á miðvikudagskvöldið. Fréttablaðið um tónleika Amadou & Mariam

**** Spennandi framúrstefna
...spilamennska kalíforníska strokeykisins, ásamt dyggri þátttöku íslenzka píanistans og flautuleikarans, setti það rækilegan punkt yfir i-ið að upplifun kvöldsins kom jafnvel semingsfyllstu hlustendum gleðilega á óvart.Í afburðatúlkun sextetts strengjatríós FQ, Berglindar Maríu á flautur, Brians Walsh á klarínettin og Tinnu Þorsteinsdóttur á píanó (er átti m.a. stormandi virtúósan einleikskafla) kom verkið, andstætt öllum fordómum, fyrir sem ótrúlega spennandi tónsmíð...Svipaður spilagaldur kom við sögu fyrir hlé. Forbidden mantra [2010; 10'] Atla Ingólfssonar hélt athygli til enda í innlifuðum flutningi septetts flautu, klarínetts, píanós og strengjakvartetts FQ með skemmtilega andstæðri áferð. Morgunblaðið um tónleika Njúton og The Formalist Quartet

**** Frábær kennslustund í menningu
... ein virðingarverðasta uppákoma sem undirritaður hefur orðið vitni að í menningarlífinu þetta leikhúsmisseri. Ég skemmti mér konunglega og eitt af því sem hefur verið að leita á huga minn eftir þessa „smáu“ fallegu leikhúsreynslu er þetta: Af hverju er verið að kynna þessa sýningu sem barnasýningu? Þetta er spretthörð fantasía fyrir ALLA! Kennslustund í menningu. Morgunblaðið um Herra Pott og ungfrú Lok

***½ Jákvæður hræringur
Sýningin er heilstæð, fjörug og fyndinn. Leikararnir eru báðir góðir, hvor á sinn hátt. Kristján Ingimarsson býr yfir stórkostlegri líkamlegri færni....Gjarna glittir í trúðinn í sviðsframkomu hans en grunnurinn er þrautþjálfuð leikfimi og dans. Allir þessir þættir njóta sín í þessari sýningu. Tónlistin ber sum atriðin á höndum sér og hljóðheimur tækjanna á sviðinu er snilldarsamsuða. Morgunblaðið um af Ástum manns og hrærivélar

Þeir sem elska trúðleik í hæsta gæðaflokki ættu ekki að missa af þessu. TMM.is um Af ástum manns og hrærivélar

***½ Miðjarðarhafshiti og óperusviti
...mikil upplifun.... Listahátíð fær prik fyrir þá breidd sem hún býður upp á í tónleikahaldi í ár. Tónleikar á borð við þessa eru viðburður sem áhugamenn um tónlist eiga ekki láta fram hjá sér fara. Morgunblaðið um tónleika Orquesta Chekara Flamenca

**** Millimúsík í öndvegi
Bráðskemmtilegt framlag þeirra Ásgerðar Júníusdóttur og Jónasar Sen fullnægði með glans helztu kröfum um gæði og fjölbreytni. ... Þótt hljómborðsútsetningar Jónasar væru yfirleitt einfaldar í sniðum féllu þær að lögum Bjarkar sem hönd að hanzka....Flutningurinn var vitanlega engu síðra forgangsatriði, og áttu þar jafnan hlut söngvarinn og undirleikarinn. Jónas sýndi jafnt rútínu hins þaulæfða bandspilara sem næmi hins klassískt menntaða píanóljóns (með nokkrum bravúrarunum undir lokin), og fjölhæfur mezzo-alt Ásgerðar Júníusdóttur spannaði allt frá demónískri dramatík í ísmeygilegan kraunsöng með ýmist óperuhæfu bel canto eða sjarmerandi vísnarauli. Morgunblaðið um tónleika Ásgerðar Júníusdóttur og Jónasar Sen

Þær eru ekkert annað en snillingar konurnar sem gátu skapað þessa harmónísku heild. Þeim Láru Stefánsdóttur, Ástrós Gunnarsdóttur og Hrafnhildi Hagalín hefur með Bræðrum tekist að sjóða saman töfrastund fyrir áhorf- og heyrendur. Tónlist Röggu Gísla og búningar Filippíu Elísdóttur fullkomnuðu sköpunarverkið. Húrra fyrir öllum þessum fantaflottu konum. ... Ég ætla ekki að telja upp allt það sem var frábært við þessa upplifun, en eitt af því sem stendur upp úr, er dásamlegur húmorinn í verkinu. ... Takk fyrir þessa veislu. Morgunblaðið um dansverkið Bræður

Bræður er merkileg tilraun. Sýningin lýsir af metnaði, smekkvísi og vilja til að taka fyrir stórt og flókið viðfangsefni. Fréttablaðið um Bræður

 Söngvar harms og hláturs ***½
...með þeim fjölbreyttari sem um getur á hérlendum vettvangi sinfóníutónleika. Fjórir þættir úr svítu Sibeliusar um Pelléas og Mélisande (nr. 1, 6, 7 og 8) tókust merkilega vel (...) sérstaklega tveir síðustu þökk sé póetískri innlifun og magnaðri styrkvídd. Canto elegiaco Nordals fyrir selló og strengi jafnvel enn betur, ef marka má margan eftirminnilegan flutning á þessu skáldlega meistaraverki er Bryndís Halla sólóaði eins og engill. Tatu Kantomaa setti sömuleiðis virtúósan glampa á einleikinn í stílblendnum nikkukonserti Fagerudds [18'] svo af bar og yppti stykkinu í hæðir þrátt fyrir ýmsa snögga stílbrotsbletti á mörkum hins banala, að ógleymdum skondum heimskautavalsi Tatus Red was the arctic sky. Morgunblaðið um tónleika Sinfóníuhljómsveitar Vaasa borgar í Finnlandi, spilara út Caput ofl.

 

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica