Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

AUGLÝST EFTIR FRAMKVÆMDASTJÓRA

5/6/2010

Starf framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík var auglýst til umsóknar í júní. Ráðningartími er frá 1. september 2010. Starfið er fólgið í fjölþættum undirbúningi hverrar hátíðar og öðrum þeim verkefnum sem unnin eru á vegum Listahátíðar. Framkvæmdastjóri annast daglegan rekstur og stjórn fjármála Listahátíðar í umboði stjórnar og listræns stjórnanda Listahátíðar, vinnur að fjáröflun og samningagerð, gerð fjárhagsáætlunar og uppgjörs. Umsækjandi hafi háskólamenntun sem nýtist í starfi sem og reynslu af rekstri, fjármála- og verkefnastjórnun.
Umsóknarfrestur rann út 25. júní 2010. Umsóknum með upplýsingum um menntun og starfsreynslu skal skilað til stjórnar Listahátíðar í Reykjavík, pósthólf 88, 121 Reykjavík eða á skrifstofu Listahátíðar í Gimli, Lækjargötu 3, Reykjavík.

Sjá auglýsinguna hér.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica