LÍFLEGAR LEIKSÝNINGAR Á LISTAHÁTÍÐ FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
Sýningar standa yfir á tveimur leiksýningum á Listahátíð sem hafa hlotið frábærar viðtökur og dóma. Í heimilistækjasirkusnum Af ástum manns og hrærivélar túlka Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Kristján Ingimarsson íslensk hjón á óborganlega hátt.
Síðustu sýningar á Af ástum manns og hrærivélar eru föstudag og laugardag kl. 20 í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Miðaverð er 2.500 krónur. Kaupa miða.
Í Hr. Potti og ungfrú Lok eru það búsáhöldin sem lifna við í tónævintýri fyrir alla fjölskylduna, líka þá allra yngstu. Í sýningunni er ástarsaga Hr. Potts og ungfrú Loks sögð með gáskafullum leik og lifandi tónlist, þar sem foxtrott, charleston, djass og tangó koma við sögu. Lokasýningar eru laugardag og sunnudag kl. 13 og 15. Miðaverð er 1.500 krónur. Kaupa miða.

.jpg)