LOKADAGAR OG LEIÐSAGNIR UM LJÓSMYNDASÝNINGAR
Listahátíð lýkur á laugardaginn en velflestar ljósmyndasýningar á dagskrá hátíðarinnar halda áfram í galleríum og sýningarsölum. Þó lýkur tveimur ljósmyndasýningum um helgina, Fyrirmyndum Ólafar Nordal í Listasafni ASÍ við Freyjugötu og Núna, samsýningu finnskra og íslenskra samtímaljósmyndara í Norræna húsinu.
Á morgun, laugardag, leiðir Guðni Tómasson listsagnfræðingur og útvarpsmaður áhugasama um útiljósmyndasýninguna Raunveruleikatékk og hefst gönguferðin kl. 14 við Nasa á Austurvelli. Á sunnudaginn kl. 14 leiðir Halldór Björn Runólfsson gesti um sýningu Cindy Sherman, Untitled Film Stills, í Listasafni Íslands. Á laugardag frá kl. 13-16 býðst fjölskyldum að smíða sína eigin myndavél í fjölskyldusmiðju á Kjarvalsstöðum, undir leiðsögn Péturs Thomsen. Nánari upplýsingar hér.

