LOKATÓNLEIKAR LISTAHÁTÍÐAR LAUGARDAG KL. 17
okapunktur Listahátíðar verður settur á laugardaginn klukkan fimm með glæsilegri óperuveislu Kristins Sigmundssonar, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Óperukórsins í Reykjavík.
Þetta eru fyrstu einsöngstónleikar Kristins með Sinfóníunni um árabil, og á efnisskránni eru meðal annars aríur úr Rakaranum í Sevilla, Don Carlo og Hollendingnum fljúgandi. Hátt í tvö hundruð manns taka þátt í tónleikunum, hljómsveitarstjóri er Petri Sakari og kórstjóri Garðar Cortes. Löngu er orðið uppselt á tónleikana.
Við vekjum athygli á tímasetningu tónleikanna, þeir hefjast klukkan 17 í Háskólabíói.

