Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

HAMAR, ÍSTAÐ, STEÐJI Á KJARVALSSTÖÐUM 1. JÚNÍ

Deiglan í samtímatónlist skoðuð ásamt litríkum hópi  tónlistarmanna sem margir hverjir koma fram á Listahátíð í Reykjavík 2010.

31/5/2010

  • LUMEN

Á undanförnum árum hefur verið mikil deigla innan nýrrar tónlistar og hljóðlistar. Bakgrunnur tónlistarmanna verður æ margbreytilegri. Sú ofuráhersla sem lengi var á handverkið hefur að einhverju leyti vikið fyrir áherslu á sköpun og hugmyndalist. Tónlistarmaðurinn skilgreinir sig endilega ekki út frá hljóðfærinu sem hann leikur á eða miðlinum sem slíkum heldur nýtir hann sér hljóðið og hljóðfærin til að koma hugsun sinni á framfæri. Tónlistarskólar hafa í auknum mæli áttað sig á og gengið í takt við breytta tíma: tekið á móti sjálfmenntuðum kjöltutölvugrúskurum sem ekki hafa hefðbundinn tónfræðibakgrunn en þess meiri þekkingu á upptökutækni, hljóðfræði, klippingu, forritun og öðru sem tónlistarmaður 21. aldar þarf jafn mikið að kunna skil á og kontrapunkti. Og myndlistarmenn seilast í auknum mæli í hljóð sem hráefni í rýmisverk sín og listaverk. Þessi deigla verður skoðuð í fylgd litríks hóps tónlistarmanna á málþingi um samtímatónlist.

Þátttakendur eru Berglind María Tómasdóttir, flautuleikari; Anna S. Þorvaldsdóttir, tónskáld; Daníel Bjarnason, tónskáld; Davíð Brynjar Franzson, tónskáld; Halldór Úlfarsson, hljóðfærahönnuður og myndlistarmaður og Njörður Sigurjónsson, doktor í menningarstjórnun.
Umsjón hefur Elísabet Indra Ragnarsdóttir.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica