Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Njúton og Formalist Quartet frumflytja verk Atla Ingólfssonar og ráðast í stórvirki nútímatónbókmenntanna

31/5/2010

  • Njúton og The Formalist Quartet munu koma fram saman á Listahátíð
Íslenski tónlistarhópurinn Njúton og bandaríski strengjakvartettinn The Formalist Quartet leiða saman hesta sína og frumflytja á Íslandi eitt af stórvirkjum tónlistarsögu 20. aldar; Vortex Temporum eftir franska tónskáldið Gérard Grisey. Tónlist Grisey hefur lítið hljómað á Íslandi en hann er eitt af höfuðskáldum spektraltónlistar. Á tónleikunum verður jafnframt frumflutt nýtt verk eftir Atla Ingólfsson innblásið af Gérard Grisey. Einnig verða tveir strengjakvartettar eftir Úlfar Inga Haraldsson og Nicholas Deyoe fluttir á tónleikunum.  Súpuspjall verður á Sólon fyrir tónleikana þar sem Atli Ingólfsson mun fræða gesti um spektraltónlist og hvers vegna tónverk Griseys er talið eitt af meistaraverkum nútímatónbókmenntanna. Spjall Atla hefst kl. 18.00 og tónleikarnir kl. 20.00.

Flytjendur eru Berglind María Tómasdóttir flauta, Brian Walsh klarinett, Mark Menzies fiðla/víóla/stjórnandi, Andrew McIntosh fiðla/víóla, Andrew Tholl fiðla, Ashley Walters selló og Tinna Þorsteinsdóttir píanó. Strengjaleikararnir eru allir meðlimir í strengjakvartettnum The Formalist Quartet sem hefur notið mikillar velgengni vestanhafs og komið fram víða um Bandaríkin. Öll komu þau við sögu þegar stórvirki Griseys; Les Espaces Acoustiques var flutt í fyrsta sinn í heild sinni í Bandaríkjunum fyrr í vor í Walt Disney Concert Hall undir stjórn Mark Menzies.

Skoða nánar og kaupa miða

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica