Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

LÍFLEG LISTAHÁTÍÐARHELGI

31/5/2010

  • Orquesta Chekara fagnað í Óperunni
  • Gestum Guðrúnar Helgadóttur var boðið út í garð
  • Gestum Guðrúnar Helgadóttur var boðið út í garð

Nýliðin Listahátíðarhelgi var stútfull af spennandi viðburðum og bar þar hæst spænsk/marókkósku sveitina Orquesta Chekara Flamenca, sem troðfylltu Íslensku óperuna í gærkvöld og var fagnað með standandi lófataki. Listahátíðargestir áttu margar góðar stundir á húslestrum rithöfunda sem opnuðu heimili sín og garða í góða veðrinu. 

Þá héldu Ágúst Ólafsson og Gerrit Schuil stórkostlega lokatónleika á sunnudagsmorgun og ætlaði þak Fríkirkjunnar beinlínis að rifna af þegar fagnaðarlæti áhorfenda brutust út að loknum Svanasöng þeirra félaga. Prúðbúin hljómsveitin í Herra Potti og ungfrú lok hreif börn og fullorðna í með sér í tónævintýri þar sem þau fræddust um tangó, charleston, foxtrott og fleira.

Þá leiddi Jón Proppé listheimspekingur leiðsögn um útiljósmyndasýninguna Raunveruleikatékk í miðbæ Reykjavíkur en næstkomandi laugardag verður Guðni Tómasson listsagnfræðingur og útvarpsmaður með leiðsögn um sýninguna og hefst hún kl. 14.00 við steypustanda á Austurvelli, gegnt Nasa.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica