Fréttir
LEIÐSÖGN UM RAUNVERULEIKATÉKK Á SUNNUDAG KL. 14
Listahátíð í Reykjavík opnaði útiljósmyndasýninguna Raunveruleikatékk undir berum himni miðborgar Reykjavíkur þann 15. maí síðastliðinn. Á sunnudaginn mun Jón Proppé listheimspekingur veita leiðsögn um sýninguna og hefst hún kl. 14.00 við steypustanda á Austurvelli (gegnt Nasa).
Raunveruleikatékk skartar verkum eftir Daníel Þorkel Magnússon, Eggert Jóhannesson, Harald Jónsson, Ievu Epnere, Hlyn Hallsson, Ingvar Högna Ragnarsson, Kristleif Björnsson, Libiu Castro og Ólaf Ólafsson, Óskar Hallgrímsson, Silju Sallé og Spessa. Sýningarstjóri er Æsa Sigurjónsdóttir.
Á sýningunni Raunveruleikatékk er meðal annars fjallað um ágengni ljósmynda og flökt þeirra á milli ólíkra merkingarheima myndlistar og fjölmiðla. Í verkunum er tekist á við daglegt umhverfi, atburði líðandi stundar, við sjálfsagða hluti sem verða álitamál, en einnig hversdagstöfra í sinni einföldustu mynd.