Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

HÚSLESTRAR, TÓNÆVINTÝRI, SCHUBERT OG MIÐJARÐARHAFSMÚSÍK

29/5/2010

  • Húslestrar
Það verður án efa heimilisleg og hjartnæm stemning er rithöfundar opna heimili sín fyrir gesti Listahátíðar um helgina. Húslestrar þeirra hefjast á klukkutíma fresti á morgun og hinn og aðeins eru örfá sæti í boði á hvern og einn.

Á laugardag og sunnudag verður frumsýnt í Kúlunni í Þjóðleikhúsinu gáskafullt tónævintýri fyrir börn sem nefnist Herra Pottur og ungfrú Lok. Þar segja fimm hljóðfæraleikarar, jafnmargar brúður og sögumaður frá draumi lítils drengs þar sem áhöldin í eldhúsinu lifna við. Alls eru fjórar sýningar á verkinu um helgina, og þann 3. júní verður sérstök sýning á frönsku.

Hvert sæti verður skipað enda löngu orðið uppselt í Íslensku óperuna á sunnudagskvöld. Orquesta Chekara Flamenca fer með áhorfendur í ferðalag um tónlistarhefð Suður-Spánar og Marokkó, þar sem tónlist beggja landanna fléttast saman við flamencodans.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica