Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

SCHUBERT SLÆR Í GEGN - LOKATÓNLEIKAR Á SUNNUDAGINN

28/5/2010

  • Gerrit og Ágúst

Ágúst Ólafsson barítónsöngvari og Gerrit Schuil píanóleikari hafa slegið í gegn með morguntónleikaröð sína í Fríkirkjunni. Enginn íslenskur söngvari hefur áður tekist á við heildarflutning þessara söngflokka og hafa þeir hlotið frábærar viðtökur áhorfenda og lofsamlega dóma fyrir flutning sinn og túlkun. Lokatónleikar Ágústs og Gerrits eru á sunnudaginn klukkan 11.00, þar sem þeir flytja Der Schwanengesang, Svanasöng, en þeir fluttu Malarastúlkuna fögru og Vetrarferðina síðustu tvo sunnudagsmorgna.

Helgi Jónsson tónlistargagnrýnandi Ríkisútvarpsins segir meðal annars í dómi sínum í Víðsjá:

"Ágúst er einn af okkar allra, allra bestu söngvurum ... Ég get ekki ímyndað mér annað en að þeir sem þetta upplifðu muni mæta aftur í Fríkirkjuna og hlakka til næsta sunnudags". Hlusta á umfjöllunina í heild sinni á vef Ríkisútvarpsins.

Í tilefni tónleikaraðarinnar opnar veitingahúsið Iðnó í hádeginu og býður upp á hádegishlaðborð. Sjá matseðil hér

Kaupa miða á Svanasöng

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica