Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

RAUNVERULEIKATÉKK Á HRINGFERÐ 3. JÚLÍ - 31. ÁGÚST

6/7/2010

  • Raunveruleikatékk á Listahátíð

Listahátíð í Reykjavík hefur undanfarin ár lagt áherslu á að flytja verkefni á dagskrá hátíðarinnar út á landsbyggðina. Árið 2009 voru settar upp fjórar myndlistarsýningar í jafnmörgum vitum í öllum landshlutum og á Listahátíð 2010 verður hluti sýningarinnar Raunveruleikatékk fluttur úr 101 Reykjavík í dreifðari byggðir landsins í samvinnu við Landsvirkjun.

Á sýningunni Raunveruleikatékk er meðal annars varpað fram spurningum um hvers konar verk megi sýna í almannarými og hvar megi sýna þau. Eins og segir í umfjöllun Æsu Sigurjónsdóttur sýningarstjóra virðist almannarýmið vera hlutlaust en það er í raun viðkvæmt eins og áhorfandinn sjálfur.    

Listahátíð í Reykjavík færir Raunveruleikatékk út á landsbyggðina í samvinnu við Landsvirkjun, fyrirtæki sem segja má að gangi einnig í gegnum raunveruleikatékk nýrra tíma. Fyrirtækið hefur um árabil stutt myndlistarsköpun við rótgrónar aflstöðvar á suður-og norðurlandi, þar sem menning og náttúra mætast. Þar er myndunum ætlað að halda áfram að opna umræðuna um virkni lista í almannarými. Á meðan Raunveruleikatékk í 101 Reykjavík myndar ákveðna gönguleið sem á sér rætur í gamla rúntinum mun Raunveruleikatékk á landsbyggðinni mynda hringleið sem kallast á við hringferðalög íslenskra og erlendra ferðamanna. Stöðvar Landsvirkjunar eru opnar almenningi yfir sumartímann og heimsækja nokkur þúsund gestir stöðvarnar á hverju sumri.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica