LISTAHÁTÍÐ Í KASTLJÓSI ERLENDRA FJÖLMIÐLA
Í tilefni Listahátíðar í Reykjavík 2010 hefur hópur erlendra blaðamanna dvalið í Reykjavík undanfarna daga. Að komu þeirra standa auk Listahátíðar; Höfuðborgarstofa, Ferðamálastofa og Útflutningsráð. Meðal fjölmiðla sem blaðamennirnir skrifa fyrir eru bandarísku blöðin The New York Post og Art Newspaper, hið austurríska Der Standard, Art das Kunstmagasin og Financial Times í Þýskalandi, Pohjalainen í Finnlandi og Ritzau fréttastofan í Danmörku. Blaðamennirnir hafa sótt fjölmarga af þeim sxtíu viðburðum sem eru á dagskrá Listahátíðar í ár, þar á meðal fjölda ljósmyndasýninga, en að þessu sinni leggur Listahátíð sérstaka áherslu á ljósmyndir með yfir tuttugu sýningum í galleríum, söfnum og á götum úti.
Blaðamennirnir hafa einnig rætt við fjölda listamanna sem taka þátt í hátíðinni. Meðal viðburða sem blaðamennirnir hrifust af auk ljósmyndasýninganna voru tónleikar kammerkórsins Carminu í Kristskirkju, leiksýningin Rómeó og Júlía frá Litháen, morguntónleikar Ágústs Ólafssonar og Gerrits Schuil í Fríkirkjunni og tónleikar Bedroom Community.
Tilgangurinn með að bjóða blaðamönnunum til landsins er að kynna umheiminn fyrir þeim miklu möguleikum sem Ísland, og þá sérstaklega Reykjavík, hefur upp á að bjóða fyrir ferðamenn, m.a. á sviði menningar og lista. Blaðamennirnir hafa jafnframt því að sækja viðburði Listahátíðar, kynnt sér margar hliðar borgarinnar og heimsóttu meðal annars tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu.
Listahátíð í Reykjavík, sem nú fagnar 40 ára afmæli, leggur áherslu á að efla tengsl hátíðarinnar við umheiminn, enda eru slík tengsl mikilvæg til að halda áfram að fá hingað erlenda listamenn í fremstu röð, en ekki síður til að hafa áfram milligöngu um að koma íslenskum listamönnum á framfæri við umheiminn.
