FRÁBÆRIR VIÐBURÐIR UM HELGINA
Um helgina verður margt að gerast á Listahátíð. Harmónikkuæringinn Kimmo Pohjonen heldur tónleika í kvöld, 21. maí, kl. 21 í NASA. Kimmo fer ótroðnar slóðir í tónlistarsköpun sinni og opnar nýjar víddir fyrir áhorfendum í harmónikkuleik.
Á laugardag og sunnudag verða haldnir 12 vinnustofutónleikar vítt og breitt um borgina. Þar gefst gestum færi á að hlýða á ýmiss konar tónlist í vinnustofum myndlistarmanna. Hér er hægt að lesa meira um þessi skemmtilegu stefnumót.
Á hvítasunnudag heldur Adapter tónleika í Listasafni Íslands kl. 21. Adapter er þýsk/íslenskur tónlistarhópur sem sérhæfir sig í að flytja samtímatónlist. Á Listahátíðartónleikunum spila þau verk eftir m.a. Donatoni, Pintscher og myndlistarmanninn Halldór Úlfarsson og eru ljósaperur og eldspýtur meðal hljóðfæra sem notuð eru við flutninginn.
Á mánudag, annan í hvítasunnu, mun svo Megas halda stórtónleika í Háskólabíói en þar koma fram ásamt Megasi; hljómsveit, strengjakvintett og stúlknakór. Aðdáendur Megasar ættu ekki að láta þessa tónleika fram hjá sér fara og fer hver að verða síðastur að ná sér í miða.

