Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

RAUNVERULEIKATÉKK Í MIÐBÆNUM

18/5/2010

  • Raunveruleikatékk, ljósmyndasýning á götum úti

Glöggir vegfarendur hafa rekið augun í ljósmyndir sem prýða ýmis grindverk og veggi miðborgar Reykjavíkur. Þarna er að finna ljósmyndir af sýningunni Raunveruleikatékk á Listahátíð í Reykjavík og opnuð var síðastliðinn laugardag með leiðsögn Æsu Sigurjónsdóttur um sýninguna.

Í verkunum er tekist á við daglegt umhverfi, atburði líðandi stundar, við sjálfsagða hluti sem verða álitamál, en einnig hversdagstöfra í sinni einföldustu mynd. Í Raunveruleikatékki mætast ljósmyndarar og myndlistarmenn sem eiga það sameiginlegt að nota ljósmyndatæknina á skapandi hátt og snúa hversdagsleikanum upp í fagurfræði dagsins í dag. Á sýningunni eru verk eftir Daníel Þorkel Magnússon, Eggert Jóhannesson, Harald Jónsson, Ievu Epnere, Hlyn Hallsson, Ingvar Högna Ragnarsson, Kristleif Björnsson, Libiu Castro og Ólaf Ólafsson, Óskar Hallgrímsson, Silju Sallé og Spessa.

Sýningin er í miðborg Reykjavíkur til 28. júní en frá 3. júlí til 31. ágúst verður hún í og við stöðvar Landsvirkjunar  um land allt.
 

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica