Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

TAKTU HELGINA FRÁ - SJÁUMST Á LISTAHÁTÍÐ

15/5/2010

  • Punzelle 3

Miðborgin ólgar af lífi um helgina, sem er stútfull af spennandi viðburðum. Hátíðargestir eru sérstaklega boðnir velkomnir á opnun útiljósmyndasýningarinnar Raunveruleikatékk á laugardaginn kl. 13 en sýningin er opnuð með leiðsögn Æsu Sigurjónsdóttur sýningarstjóra og hefst hún við Landsímahúsið við Austurvöll.

Eftir gönguferð um Raunveruleikatékk er tilvalið að fylgjast með kanadísku brúðuleikkonunni Julie Desrosiers í hlutverki Punzelle flytja Grimmsævintýrið Rapunzel (Garðabrúðu) á útitaflinu við Lækjargötu en sýningar hennar eru kl. 13.00, 14.30 og 16.00, þar sem hún galdrar fram allar persónur ævintýrisins, eina af annarri, á stultum og í gríðarstóru pilsi. Aðgangur er ókeypis.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica