LISTAHÁTÍÐ SETT
Á setningu Listahátíðar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi í dag var fluttur margbrotinn gjörningur, Biðstofan/The Green Room og ljósmyndainnsetning David Byrne í gluggum Hafnarhúss var opnuð formlega. Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi hátíðarinnar flutti ávarp og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri setti hátíðina.
Biðstofan / The Green Room
Á sjötta tug listamanna; söngvarar, dansarar, tónlistarmenn og hönnuðir, sýndu “Barnafossa” - atriði úr verki í vinnslu, eftir Helenu Jónsdóttur.
Gjörningurinn var unninn sérstaklega inn í rýmið í Hafnarhúsi fyrir opnun Listahátíðar.
Verkið Biðstofan/The Green Room, sem opnunaratriðið er hluti af, hefur verið í vinnslu hjá höfundi og hennar nánasta samstarfsfólki undanfarin misseri. Um er að ræða viðamikið fjöllistaverk fyrir svið með ótal vaxtasprotum, m.a. í formi kvikmynda- og sjónvarpsverks, myndlistainnsetningar, hönnunar- og handverks.
Flytjendur:
Aðalheiður Halldórsdóttir dansari
Dansdeild LHÍ; Ásrún Magnúsdóttir, Rósa Ómarsdóttir, Þyri Huld
Árnadóttir, María Þórdís Ólafsdóttir, Kara Hergils og Berglind Pétursdóttir.
Karlakórinn Fóstbræður,
Nemendur úr Kvikmyndaskóla Íslands Leiklistardeild og gestir.
Framleiðandi:
MPP ehf/Mypocket Production www.this.is/mypocket
Höfundur og leikstjóri/Director – Green room by;
Helena Jónsdóttir www.this.is/helena
Samstarfsaðili HJ/ Collaborator
Eva Rún Þorgeirsdóttir
Búningar og útlit/Costumes;
Filippía Elísdóttir
Aðst.Sórún Ósk Jónsdóttir
Klæðskeranemar Iðnskóla Íslands 2010
Förðun:
Svanhvít J.Valgeirsdóttir / Guðrún Erla Sigurbjarnadóttir
Lýsing/Lights:
Aðalsteinn Stefánsson
Hljóðmynd/frumsamin tónlist:
Valgeir Sigurðsson
Kimmo Pohjonen
Söngurinn “Sólin”,
Tónsmíð Báru Grímsdóttur - byggð á íslensku kvæðastefi.
Texti/Text: Magnea Halldórsdóttir.
Söngur/Singer: Aðalheiður Halldórsdóttir
Önnur tónlist-raddir
í flutningi Fóstbræðra/ Male Choir
undir stjórn/ Dir. Árna Harðarsonar
Hljóðvinnsla
Birkir Gíslason
Aðstoðarmaður leikstjóra
Eygló Þorgeirsdóttir
Biðstofugestir
Hrafndís Einarsdóttir, Alexandra Sigurðardóttir
Tinna Ágústsdóttir og gestir
Tónlistina í opnunarverkinu er að finna á þessum diskum:
(Soundtrack CD´s)
Draumalandið, Valgeir Sigurðsson
Funi, Bára Grímsdóttir
Kluster, Kimmo Pohjonen
Biðstofa/GreenRoom er styrkt af Reykjavíkurborg




