Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

ÞÆTTIR UM LISTAHÁTÍÐ Á RUV

4/5/2010

  • Amadou & Mariam frá Malí

Síðastliðið sunnudagskvöld var hinn árlegi þáttur Listahátíðar í Reykjavík frumsýndur en þar var dagskrá hátíðarinnar kynnt ítarlega af Felix Bergssyni. Þeir sem misstu af þættinum þurfa ekki að örvænta því endursýningar eru fyrirhugaðar miðvikudaginn 5. maí kl. 00.25 og sunnudaginn 9. maí kl. 13.50, strax á eftir Silfri Egils. Um dagskrárgerð sá Jón Egill Bergþórsson.

 

Í útvarpinu þann 1. maí mátti heyra frábæran þátt Sigurlaugar Margrétar Jónasdóttur, „Hér fær listin að tala beint við sálina“, sem gerður var í tilefni 40 ára afmælis Listhátíðar í ár. Sigurlaug rifjar upp skemmtilega viðburði af hátíðinni og endurvekur góðar minningar Listahátíðargesta í gegnum tíðina. Þátturinn verður endurfluttur á Rás 1 miðvikudaginn 5. maí kl. 23.05.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica