Bergmál Ragnhildar Gísladóttur
29/3/2005
Eitt af viðamestu verkefnum Listahátíðar í Reykjavík 2005 eru tónleikar í samstarfi við Skálholt. Í tónleikunum taka þátt japanski slagverksleikarinn Stomu Yamash’;ta, Ragnhildur Gísladóttir, Sigtryggur Baldursson og Sjón ásamt Barna- og kammerkór Biskupstungna og Skólakór Kársness. Stjórnandi er Þórunn Björnsdóttir. Einnig tekur þátt í verkefninu Hilmar Örn Agnarsson organisti í Skálholtsdómkirkju. Tónlistarverkefnið sem hefur fengið heitið Bergmál verður frumflutt í Skálholtsdómkirkju laugardaginn 21. maí kl. 13:30. Aðrir tónleikar verða haldnir í Langholtskirkju þriðjudaginn 24. maí kl. 20:00. Stomu Yamsh’;ta sem er fæddur árið 1947 í Kyoto, er einn þekktasti ásláttaleikari heims og sagður hafa breytt ímynd slagverksins. Hann mun af þessu tilefni flytja með sér til landsins hljóðfæri sem búið er til úr þriggja milljón ára gömlum steinum og vegur um eitt tonn. Stomu hefur unnið með fjölmörgum heimsþekktum listamönnum, þar á meðal tónlistarmanninum Mick Jagger og kvikmyndaleikstjóranum Robert Altman auk þess sem hann samdi tónlistina við “The Man who Fell to Earth” eftir Nicolas Roeg. Hann hefur fengið fjölda verðlauna fyrir tónlist og tónlistarstjórn. Að undanförnu hefur hann í auknum mæli helgað sig japanskri tónlist og tónlist tengdri friði í heiminum. Á Listahátíð í vor starfar Stomu hins vegar með íslenskum listamönnum og frumflutt verður nýtt íslenskt verk eftir Ragnhildi Gísladóttur við texta eftir Sjón. Af þessu tilefni var efnt til blaðamannafundar í Skálholti þriðjudaginn 18. janúar kl. 12:00. Þar var verkefnið kynnt auk þess sem undirritaður var samstarfssamningur Listahátíðar í Reykjavík við Skálholt, Toyota og Baugur Group. Fyrir hönd Toyota undirritaði Björn Víglundsson samninginn og Hreinn Loftsson fyrir hönd Baugs Group.
Senda grein