Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

FJÖRUTÍU ÁRA SAGA

8/3/2010

  • Gimli Lækjargötu

Listahátíð í Reykjavík var haldin í fyrsta sinn sumarið 1970. Frá upphafi hefur hátíðin verið í fararbroddi í íslensku menningarlífi og verið frumkvöðull í því að kynna íslensku þjóðina fyrir listamönnum á heimsmælikvarða.

Listahátíð hefur einnig í samstarfi við helstu menningarstofnanir landsins stuðlað að framgangi íslensks listalífs og kynningu íslenskra listamanna á erlendri grund og tilvera Listahátíðar hefur jafnframt verið nýtt með virkum og áhrifaríkum hætti í því skyni að kynna land og þjóð.
Hér er hægt að skoða allar dagskrár Listahátíðar frá upphafi og rifja upp tíðaranda í menningu og listum í fjóra áratugi.


Í tilefni afmælisárs Listahátíðar rifjaði Morgunblaðið upp í máli og myndum heimsóknir margra af mætustu gestum hátíðarinnar frá upphafi. Greinin birtist í Lesbók Morgunblaðsins þann 29. janúar 2010. Hér er hægt að skoða umfjöllunina.

Einnig birtist í Sunnudagsmogganum þann 7. mars viðtal við stjórnanda Listahátíðar, Hrefnu Haraldsdóttur, sem sjá má hér.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica