Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Sirkus á Listahátíð

28/3/2005

Hinn heimsþekkti franski sirkus, Cirque, sem áður var þekktur undir nafninu Que-Cir-Que, kemur fram á Listahátíð í Reykjavík 2. til 6. júní og slær þá upp tjaldi á Hafnarbakkanum í miðbæ Reykjavíkur. Um er að ræða samstarf Listahátíðar í Reykjavík og Hátíðar hafsins sem fram fer um sama leyti. Sýning Cirgue, sem nefnist “The Story of Auguste”, hefur allt að geyma sem prýðir skemmtilegan sirkus, bæði sjónhverfingar og loftfimleika, en er að sama skapi mikil leiksýning sem sögð er höfða til allra sex skilningavitanna. Sýningin byggir á sögu hins þekkta bandaríska rithöfundar Henry Miller “The smile at the foot of the ladder” sem segir frá manni sem vill ekki lengur vera trúður og baráttu hans sem bæði er sorgleg og skemmtileg. Cirque og Listahátíð í Reykjavík munu í samvinnu við Símann, sem er samstarfsaðili Listahátíðar um þetta einstaka verkefni, starfrækja líflegan sjóræningja- og sirkusskóla fyrir börn samhliða fjölmörgum sýningum sem standa yfir í fimm daga.

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica