Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

Ein af dáðustu söngkonum samtímans

30/3/2005

Sænska mezzósópransöngkonan Anne Sofie von Otter verður gestur á Listahátíð í Reykjavík næsta sumar og syngur á tónleikum í Háskólabíói 4. júní. Meðleikari hennar á tónleikunum er Bengt Forsberg sem sjálfur er einn besti ljóðapíanisti samtímans og í miklum metum. Von Otter, sem er ein af dáðustu söngkonum samtímans, er jafnvíg á óperusöng, ljóðasöng og barokkmúsík. Geisladiskar hennar eru margverðlaunaðir og hún hefur margsinnis hreppt Grammyverðlaunin, nú síðast á þessu ári, sem besti söngvari ársins en frá 1985 hefur Anne Sofie von Otter hljóðritað fyrir Deutsche Grammophon útgáfufyrirtækið, og útgefnir titlar undir hennar nafni skipta tugum. Rétt er að ítreka að aðeins einir tónleikar verða með Anne Sofie von Otter á Listahátíð í Reykjavík 2005 og er miðaverð á tónleikana kr. 5.900. Miðasala á alla viðburði Listahátíðar í Reykjavík 2005 hefst 25. febrúar, þar með talið á tónleika þessarar dáðu söngkonu. Efnisskrá tónleika Anne Sofie von Otter og Bengt Forsberg liggur þegar fyrir og er hún glæsilegasta móti. M.a syngur hún lög eftir Franz Schubert, Gustav Mahler, Jean Sibelius, Kurt Weill og fleiri. Efnisskrá tónleikanna

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica