Reykjavík Arts Festival
Fréttir
Fréttir

STÓRSTJÖRNUR Í HÖLLINNI Á OPNUNARTÓNLEIKUM LISTAHÁTÍÐAR

15/3/2010

  • Amadou&mariam3_vefur

Amadou & Mariam koma með vorið til Reykjavíkur og fylla Laugardalshöllina af fjöri þann 12. maí á opnunartónleikum Listahátíðar í Reykjavík. Parið, sem vakið hefur heimsathygli fyrir einstakan og líflegan tónlistarbræðing sinn, kemur nú hingað til lands með hljómsveit og sannkallaða heimstónlistarstemmningu sem lofuð hefur verið í hástert og samanstendur af rafmangsgíturum, kúbverskum lúðrum, egypskum flautum, sýrlenskum fiðlum, indverskum tablas trumbum og margvíslegum ásláttarhljóðfærum frá Malí.


Ferill hjónanna frá Bamakó spannar yfir þrjá áratugi, allt frá því þau kynntust á heimili fyrir blind ungmenni í heimalandi sínu Malí. Þau hafa á síðustu árum unnið með fjölda listamanna og hljómsveita, m.a. Manu Chao, Damon Albarn og David Gilmour úr Pink Floyd. Þau voru fengin til að semja þemalag HM í knattspyrnu árið 2006. Í kjölfarið var dúóið fengið af Coldplay til að koma fram á Viva la Vida tónleikaferð hennar um heimsbyggðina en sveitin hefur jafnframt hitað upp fyrir ekki ómerkari spámenn en Scissor Sisters og Blur.  Amadou & Mariam léku nýverið fyrir Barak Obama við afhendingu Nóbelsverðlaunanna í Ósló og á hinni virtu Lollapalooza tónlistarhátíð í Chigaco.

KAUPA MIÐA

Senda grein


Alþjóðlegir listamenn



Leita á vefnum




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica