MENNINGARVERÐLAUN DV
Tilnefningar til menningarverðlauna DV voru kynntar í síðustu helgarútgáfu blaðsins og er mikið gleðiefni að í tónlistarflokknum eru margir tilnefndir sem komu fram á Listahátíð 2009. Víkingur Heiðar Ólafsson átti viðburðaríkt ár í fyrra og hélt meðal annars glæsilega einleikstónleika á Listahátíð þar sem hann frumflutti íslenskar sönglagaumritanir ásamt öðru efni. Hljómsveitin Hjaltalín hefur verið á mikilli uppleið og er tilnefnd til verðlaunanna meðal annars fyrir frábæra tónleika á Listahátíð síðasta vor sem Daníel Bjarnason stjórnaði. Daníel er einnig tilnefndur til menningarverðlauna DV fyrir þessa tónleika auk fjölda annarra verka sem hann vann á síðasta ári.
Í flokki myndlistar er myndlistarmaðurinn Kristján Guðmundsson tilnefndur fyrir sýningu sína í Listasafni Íslands á Listahátíð 2009 en þar var m.a. að finna verk sem Carnegie listasjóðurinn veitti Kristjáni fyrstu verðlaun fyrir.
Menningarverðlaun DV verða afhent miðvikudaginn 10. mars.
Sjá frétt um verðlaunin á vef dv.is

